Anna Þórðardóttir og Steini Eyþórs. Ljósm. sþ.

,,Hugurinn kemur manni áfram“

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Miðvikudaginn 22. júní renndi Borgnesingurinn Þorsteinn Eyþórsson á hjólinu sínu inn í Borgarnes og lauk þar með því afreki að hjóla Vestfjarðahringinn á tíu dögum. Þorsteinn lagði af stað 12. júní síðastliðinn en í fylgd með honum var Anna Þórðardóttir eiginkona hans á húsbíl sem þau notuðu sem áningarstað. Þegar Þorsteinn, eða Steini eins og hann er gjarnan kallaður, kom inn í bæinn fékk hann heiðursfylgd lögreglu og Slökkviliðs Borgarbyggðar. Hjólreiðagarpar úr Hjólreiðafélagi Vesturlands fylgdu honum einnig í gegnum bæinn auk þess að Jóhann Harðarson frá Hraunsnefi fylgdi honum á hjóli frá Svignaskarði. Steina biðu mikil fagnaðarlæti við Skallagrímsgarð þar sem fjöldi fólks hafði safnast saman til að taka á móti honum. Slökkviliðið var mætt á svæðið með þrjá bíla sem biðu með blikkandi ljós Steina til heiðurs en hann hefur verið félagi í Slökkviliði Borgarbyggðar í áratugi. Slökkviliðið gaf Steina brunastút frá Coventry sem minjagrip í tilefni afreksins. ,,Þetta er breskur stútur frá Coventry og er þetta einn af stútunum sem notaður var til að slökkva í borginni þegar Þjóðverjar gerðu ofsafengna loftárás á Coventry í september 1942. Steini fær að hafa þetta sem stofudjásn frá okkur félögunum en hann er vel að þessu kominn,“ sagði Bjarni Kr Þorsteinsson sem afhenti Steina stútinn fyrir hönd Slökkviliðs Borgarbyggðar.\r\n\r\n<em>Rætt er við Steina Eyþórs um ferðina og sitthvað fleira í Skessuhorni sem kom út í dag.</em>",
  "innerBlocks": []
}
,,Hugurinn kemur manni áfram“ - Skessuhorn