{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Félag áhugamanna um Bátasafn Breiðafjarðar á Reykhólum, gengst nú fyrir bátahátíð á Breiðafirði í fimmtánda sinn laugardaginn 9. júlí nk. Að þessu sinni verður farið til Hvalláturs þar sem rekin var afkastamikil bátasmíðastöð fram á sjöunda áratug síðustu aldar. Þar hefur teinæringurinn Egill verið geymdur allt frá árinu 1940 er hætt var að nota hann og honum lagt\r\n\r\nRáðgert er að þátttakendur safnist saman á Reykhólum föstudaginn 8. júlí. Flóð er um klukkan 14 og þá er gott að setja bátana niður í höfninni fyrir þá sem koma með bátana landleiðina. Einnig er hægt að sjósetja báta í höfninni við Stað á Reykjanesi.\r\n\r\nÁ laugardagsmorgun verður haldið frá Reykhólum um klukkan 9 og áformað að sigla um svokallaðar Staðareyjar. Við Stað koma þeir, sem þaðan fara, til móts við þáttakendur (um kl. 10) og síðan er siglt áleiðis um Skáleyjalönd og til Hvalláturs. Staðarhaldarar í Hvallátrum munu kynna þáttakendum það starf sem þar fer fram en þar er stunduð æðarrækt og dúntekja. Einnig mun Egill verða skoðaður og saga hans sögð. Ráðgert er síðan að koma til baka seinni partinn. Að sjálfsögðu ráða aðstæður, sjávarföll og veður, mestu um hvernig siglingin verður og áætlunin getur því breyst ef aðstæður krefjast. Siglingin verður undir stjórn manna sem þekkja vel til aðstæðna við Breiðafjörð. Formaður hvers báts er ábyrgur fyrir því að nauðsynlegur öryggisbúnaður sé fyrir hendi um borð. Vinsamleg tilmæli eru að þáttakendur verði með bjargbelti og að sem flestir bátar séu búnir björgunarbátum.\r\n\r\n„Allir bátar eru velkomnir og við viljum hvetja sem flesta til að nýta sér þetta tækifæri til siglingar um þetta fallega umhverfi,“ segir í tilkynningu frá Bátasafni Breiðafjarðar.",
"innerBlocks": []
}