
Fyrsta hæðin er nú risin.
Steypt af krafti í stærsta fjölbýlishúsinu á Akranesi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í dag er unnið af krafti við að steypa gólfplötu og þak bílakjallara í nýbyggingu við Asparskóga 18 á Akranesi. Hver steypubíllinn af öðrum ekur í hlað og verður um 130 rúmmetrum af steypu dælt inn í plötuna sem festir um leið saman forsteyptar einingar sem húsið er byggt úr. Risin er fyrsta hæðin í húsinu en það verður að stærstum hluta á þremur hæðum en að hluta til á fjórum og penthouse íbúð á fimmtu. Barium ehf. byggir húsið fyrir Ferrum fasteignir. Hönnuður þess er Runólfur Þ Sigurðsson hjá Alhönnun ehf. Fullbúið verður húsið með 40 íbúðum auk bílageymslu í kjallara. Húsið verður því stærsta fjölbýlishúsið á Akranesi, stærra en fjölbýlishúsin tvö við Stillholt. Að sögn Engilberts Runólfssonar verkefnisstjóra er stefnt að íbúðir í húsinu fari í sölu eftir um það bil mánuð.\r\n\r\nHægt er að sjá nánari upplýsingar um verkefnið á <a href=\"http://asparskogar.is\">asparskogar.is</a>\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"large\" ids=\"54542,54543\"]",
"innerBlocks": []
}