Fréttir

true

Alþjóða dagur punktaleturs er í dag

Í dag, 4. janúar, er alþjóðadagur punktaleturs, eða blindraleturs eins og flestir kalla það. Viðburðurinn er haldinn ár hvert til að auka vitund um mikilvægi blindraleturs sem samskiptatækis til að auka mannréttindi blindra og sjónskertra. Það var Frakkinn Louis Braille (1809-1852) sem var blindur á báðum augum. Þegar hann var 16 ára gamall fann hann…Lesa meira

true

Fyrsta barn ársins fæddist á sunnudaginn

Fyrsta barn ársins á Vesturlandi er stúlka sem kom í heiminn á Akranesi klukkan 22:16 á sunnudagskvöld, 2. janúar. Stúlkan vó 3.390 grömm og er 51 sentímetri að lengd og hefur hún fengið nafnið Avróra Mae og foreldrar hennar eru Neilalin Mae Angco Gines og Nikita Kozlov og býr fjölskyldan í Borgarnesi. Fyrir eiga þau…Lesa meira

true

Tólf orður á nýársdag

Tólf voru sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu á nýársdag við látlausa athöfn á Bessastöðum þar sem hver og einn mætti, en ekki hópi. Þau Áslaug Geirsdóttir, Gerður Kristný Guðjónsdóttir, Sigurður Flosason, Bjarni Felixson, Kristín Þorkelsdóttir, Ólafía Jakobsdóttir, Katrín Fjeldsted, Sigurjón Arason og Trausti Valsson mættu. Þrír orðuhafar áttu ekki heimangengt meðal annars vegna veðurs og…Lesa meira

true

Von er á djúpri lægð á fimmtudaginn

Á fimmtudagsmorgun má búast við að djúp lægð komi inn á landið, að því er fram kemur í frétt á blika.is. Þar segir að dýpri lægðir sjáist varla. Um er að ræða lægð sem hefur verið að valda miklu vetrarveðri á austurströnd Bandaríkjanna en lægðin mun svo halda áfram upp með ströndinni og suður fyrir…Lesa meira

true

Starfshópur um blóðtöku hefur vinnu sína

Svandís Svavarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað starfshóp sem hefur það hlutverk að fjalla um blóðtöku á fylfullum hryssum. Hópnum er ætlað að skoða starfsemina, regluverkið og eftirlitið í kring um hana. Í hópnum eiga sæti þau Iðunn Guðjónsdóttir, sérfræðingur í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu sem er formaður hópsins, skipuð án tilnefningar, Sigríður Björnsdóttir, yfirdýralæknir í…Lesa meira

true

Árið kvatt í núll gráðum við Látravík

Þau létu ekki kuldann á sig fá þessir hressu sjósundskappar þegar þau fóru í sjóinn í fjörunni við Látravík á Snæfellsnesi á Gamlársdag. Lofthitinn þennan dag var mínus fjórar gráður og sjórinn í kringum núll gráðurnar og auðvitað var pósað fyrir ljósmyndarann að loknu sundi.Lesa meira

true

Lítil breyting í fjölda smitaðra og í sóttkví

Í gær voru 795 kórónaveirusmit greind innanlands. Hér á Vesturlandi er staðan engu að síður að mestu óbreytt frá því á nýársdag, þegar Lögreglan á Vesturlandi birti síðast tölur. Nú eru 145 í einangrun í landshlutanum og 149 í sóttkví. Heldur hefur fækkað í sóttkví á Akranesi þar sem 58 eru nú með veiruna en…Lesa meira

true

Landsliðið komið í búbblu

Einn leikmaður er í einangrun og tveir í sóttkví af 20 manna hópi A landsliðs karla í handknattleik. Leikmennirnir eiga að losna úr einangrun og sóttkví í þessari viku. Hinir leikmennirnir 17 fóru í PCR próf í gær og fengu allir neikvæða niðurstöðu. Hópurinn er því kominn í búbblu á Grand hóteli í Reykjavík núna…Lesa meira

true

Harpa Dögg kjörin Íþróttamaður Grundarfjarðar

Á gamlársdag var tilkynnt í Sögumiðstöðinni í Grundarfirði hver hefði verið valinn Íþróttamaður Grundarfjarðarðar árið 2021. Þrír íþróttamenn voru tilnefndir: Breki Þór Hermannsson fyrir knattspyrnu, Dagný Rut Kjartansdóttir fyrir riffilskotfimi/leirdúfuskotfimi og Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir fyrir hestamennsku. Það voru þær Ingibjörg Eyrún Bergvinsdóttir og Ragnheiður Dröfn Benidiktsdóttir frá Íþrótta- og æskulýðsnefnd Grundarfjarðar sem stjórnuðu athöfninni…Lesa meira

true

Bjóða út uppsteypu nýs íþróttahúss

Fasteignafélag Akraneskaupstaðar slf. auglýsir nú eftir tilboðum í uppsteypu og ytri frágang á nýju íþróttahúsi á Jaðarsbökkum. „Verkið felst í uppsteypu mannvirkis, lögnum í jörðu, fyllingu að mannvirki, tengingu við Akraneshöll, ytri frágangi, gluggum og útihurðum, þakvirki og frágangi þaks. Um er að ræða m.a. steypa 2750 m3, útveggjaklæðning 2700 m2, þakfletir 2300 m2,“ segir…Lesa meira