Lítil breyting í fjölda smitaðra og í sóttkví

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í gær voru 795 kórónaveirusmit greind innanlands. Hér á Vesturlandi er staðan engu að síður að mestu óbreytt frá því á nýársdag, þegar Lögreglan á Vesturlandi birti síðast tölur. Nú eru 145 í einangrun í landshlutanum og 149 í sóttkví.\r\n\r\nHeldur hefur fækkað í sóttkví á Akranesi þar sem 58 eru nú með veiruna en 57 eru í sóttkví. Lítilsháttar fjölgun er á starfssvæði Heilsugæslu HVE í Borgarnesi þar sem 51 eru í einangrun og 37 í sóttkví. Í Ólafsvík eru nú 17 í einangrun og 19 í sóttkví; í Dölum eru átta í einangrun og 24 í sóttkví; í Stykkishólmi eru sjö í einangrun og sex í sóttkví og loks eru fjórir í einangrun í Grundarfirði og sex í sóttkví.",
  "innerBlocks": []
}
Lítil breyting í fjölda smitaðra og í sóttkví - Skessuhorn