Fyrsti vestlendingur ársins 2022 með foreldrum sínum.

Fyrsta barn ársins fæddist á sunnudaginn

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Fyrsta barn ársins á Vesturlandi er stúlka sem kom í heiminn á Akranesi klukkan 22:16 á sunnudagskvöld, 2. janúar. Stúlkan vó 3.390 grömm og er 51 sentímetri að lengd og hefur hún fengið nafnið Avróra Mae og foreldrar hennar eru Neilalin Mae Angco Gines og Nikita Kozlov og býr fjölskyldan í Borgarnesi. Fyrir eiga þau Neilalin og Nikita 14 mánaða dóttur, Vivianne Taisia. Avróra Mae lét sjá sig aðeina á undan áætlun en settur dagur var 8. janúar. Foreldrar hennar segjast ekki hafa átt von á að eignast fyrsta Vestlending ársins, „en okkur leið svo ótrúlega vel þegar við fréttum af því,“ segir Neilalin.\r\n\r\nAvróra Mae kom í heiminn með hraði en foreldrar hennar komu á fæðingardeildina á Akranesi um kl. 21:40 að kvöldi sunnudags og var móðirin þá næstum tilbúin í fæðingu. „Þetta var fallegt en á sama tíma var þetta sárt því hún kom á innan við 45 mínútum,“ segir Neilalin og bætir við að öllum heilsist vel.\r\n\r\nÞegar blaðamaður Skessuhorns ræddi við foreldrana voru þau enn á fæðingadeildinni en stóra systir beið spennt heima eftir því að hitta litlu systur sína. „Hún hefur kysst magann minn og knúsað síðan hún vissi að hún yrði stóra systir. Ég trúi því að þær verði nánar eins og bestu vinkonur og nýr kafli okkar sé að hefjast. Þetta verður spennandi í framtíðinni,“ segir Neilalin að lokum.",
  "innerBlocks": []
}
Fyrsta barn ársins fæddist á sunnudaginn - Skessuhorn