Fréttir

true

Vegabréf ekki lengur í póst

Um áramótin tók gildi breyting á reglugerð um íslensk vegabréf. Breytingin snýr að afhendingarmáta vegabréfa en frá og með 1. janúar hætti Þjóðskrá að senda vegabréf á lögheimili einstaklinga á Íslandi. Við þessa breytingu munu einstaklingar einungis geta sótt vegabréf sín, annað hvort á skrifstofur sýslumannsembætta eða til Þjóðskrár. Þessi breyting er tilkomin vegna athugasemda…Lesa meira

true

Veður batnar á vestanverðu landinu

Veður tekur nú að batna um vestanvert landið. Spáð er norðaustan og norðan 10-18 m/s, en 15-23 sunnan Vatnajökuls og þar er í gangi gul viðvörun. Léttskýjað verður á Suður- og Vesturlandi, annars dálítil él. Hægari vindur á vestanverðu landinu eftir hádegi, en gengur í norðvestan hvassviðri eða storm austanlands í kvöld. Frost 1 til…Lesa meira

true

Svipuð staða milli daga

Á nýársdag voru 149 í einangrun á Vesturlandi með Covid-19, samkvæmt samantekt Lögreglunnar á Vesturlandi, og 147 voru í sóttkví. Breytingin frá gamlársdegi var sú að þremur færri voru í einangrun, en í sóttkví fækkaði um 37 milli daga. Hinir smituðu eru í öllum umdæmum heilsugæslustöðva á Vesturlandi. Flestir eru í einangrun á Akranesi, eða…Lesa meira

true

Ítrekað unnin skemmdarverk á hreinlætisaðstöðu

Aðkoman að salernishúsunum við Garðalund á Akranesi var ófögur að morgni nýársdags; búið að brjóta og eyðileggja þar inni. Jóhann Magnús Hafliðason birti myndir á íbúasíðunni og harmaði þessa skemmdarfýsn. Undir það taka íbúar sem tjá sig og segja nauðsynlegt að settur verði upp myndavélarbúnaður til að hægt verði að hafa hendur í hári skemmdarvarganna.…Lesa meira

true

Lokið er viðgerð á tveimur raflínum

Rafmagnsbilun varð á tveimur stöðum á Vesturlandi í gær, nýársdag. Sú fyrri var á Saurbæjarlínu í Dölum klukkan 13:16 og lauk viðgerð klukkan hálf sex í morgun. Síðari bilunin varð á Melasveitarlínu í Hvalfjarðarsveit. Þar fór rafmagn af klukkan 17 í gær og lauk viðgerð klukkan þrjú í nótt. Samhliða þessum bilunum var nokkuð flökt…Lesa meira

true

Bílabrenna í Snæfellsbæ

Mjög fáar áramótabrennur voru að þessu sinni í landshlutanum. Sú stærsta var á Breiðinni í Snæfellsbæ um þessi áramót. Sjálfboðaliðar sáu um að hlaða brennuna undir stjórn brennustjórans Hjálmars Kristjánssonar. Var þetta svokölluð „bílabrenna“ þar sem ekki var ætlast til að áhorfendur hópuðust saman við eldinn. Áhorfendur úr bílum skiptu hundruðum. Björgunarsveitin Lífsbjörg sá um…Lesa meira

true

Foktjón í upphafi árs

Björgunarsveitir Landsbjargar voru kallaðar út í þrígang í byrjun nýársdags vegna foktjóns; á Akranesi, Hellu og Þorlákshöfn. Lausamunir höfðu fokið, fánastöng og fiskikör, svo eitthvað sé nefnt. Á Hellu þurfti að koma matarvagni í skjól vegna veðurs. Um klukkan hálf fjögur voru svo björgunarsveitir aftur kallaðar út, þá á Akureyri og Suðurnesjum þar sem tilkynningar…Lesa meira

true

Jómfrúrræða Eyjólfs á Alþingi

Undir lok árs flutti Eyjólfur Ármannsson jómfrúrræðu sína á Alþingi í tengslum við fjárlagafrumvarpið sem nú er nýsamþykkt. Eyjólfur er sjötti þingmaður Norðvesturkjördæmis og er fyrir Flokk fólksins. Hann hefur verið kosinn 2. varaformaður fjárlaganefndar og 1. varaformaður allsherjar- og menntmálanefndar. Hóf hann máls sitt með þessum orðum: „Virðulegi forseti. „Stundum er sagt að steinarnir…Lesa meira

true

Flestir kaupa flugeldana á gamlársdag

Flugeldasala björgunarsveitanna nær að venju hámarki í dag, gamlársdag. Afrakstur af sölu flugelda rennir stoðum undir víðtækt starf Slysavarnafélagsins Landsbjargar sem miðar að því að bjarga mannslífum, verðmætum og koma í veg fyrir slys. Um eitt hundrað sveitir sjálfboðaliða eru til taks allan sólarhringinn, alla daga ársins. Flugeldasalan er helsta tekjulind björgunarsveitanna og getur skipt…Lesa meira