Ítrekað unnin skemmdarverk á hreinlætisaðstöðu

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Aðkoman að salernishúsunum við Garðalund á Akranesi var ófögur að morgni nýársdags; búið að brjóta og eyðileggja þar inni. Jóhann Magnús Hafliðason birti myndir á íbúasíðunni og harmaði þessa skemmdarfýsn. Undir það taka íbúar sem tjá sig og segja nauðsynlegt að settur verði upp myndavélarbúnaður til að hægt verði að hafa hendur í hári skemmdarvarganna. Garðalundur er tvímælalaust í hópi mest sóttu staða í bæjarfélaginu og margir sem njóta þar útivistar.",
  "innerBlocks": []
}
Ítrekað unnin skemmdarverk á hreinlætisaðstöðu - Skessuhorn