Fréttir

true

Talsverð fjölgun í hópi smitaðra á Vesturlandi

Lögreglan á Vesturlandi var nú rétt í þessu að birta nýjar tölur um fjölda smitaðra og í sóttkví vegna Covid-19 í landshlutanum. Alls eru nú 146 í einangrun á Vesturlandi og 184 í sóttkví. Flestir eru í einangrun á Akranesi eða 71 og 104 að auki í sóttkví; í Borgarnesi eru 47 í einangrun og…Lesa meira

true

Afhentu síðasta bílinn í gær

Eins og fram kom í frétt Skessuhorns fyrr í mánuðinum hafa bræðurnir Magnús og Ólafur Óskarssynir selt Bílasöluna Bílás á Akranesi eftir tæplega fjörutíu ára rekstur. Formleg eigendaskipti ganga yfir nú um áramótin og taka nýir eigendur, þeir Alexander Þórsson og Kristján Einarsson, við rekstrinum. Bræðurnir afhentu síðasta bílinn í gær. Kaupandinn var reyndar innan…Lesa meira

true

Sprenging í fjölda innanlandssmita

Í gær voru ríflega fimmtán hundruð innanlandsmit greind hér á landi, tæpur helmingur var í sóttkví. Þetta er langmesti fjöldi smita frá upphafi faraldursins. Slagar þessi fjöldi í heildarfjölda allra þeirra sem smituðust í fyrstu bylgjum faraldursins allt árið 2020. Nýgengi innanlandssmita er nú kominn í 1.708 á hverja 100 þúsund íbúa. Nú eru ríflega…Lesa meira

true

Varað við nýárshvelli – ekkert ferðaveður

Gul viðvörun er í gildi á nýársdag vegna lægðar sem gengur yfir landið og appelsínugul viðvörun fyrir suðausturland. Í tilkynningu sem var að berast frá Vegagerðinni segir: „Fyrir vegfarendur veldur Nýárshvellurinn þrenns konar óveðri: 1. Ofsaveður og hviður 50-60 m/s undir Eyjafjöllum og í Öræfum. 2. Hríðarveður og almenn ófærð A- og NA-lands og að…Lesa meira

true

Golfklúbburinn Leynir kominn með vallarstjóra

Einar Gestur Jónasson hefur verið ráðinn vallarstjóri hjá Golfklúbbnum Leyni á Akranesi en um heilsárs starf er að ræða og felur í sér faglega umsjón Garðavallar sem og mannaforráð sumarstarfsmanna. Samkomulag milli Einars Gests og Golfklúbbsins Leynis var handsalað í gær og mun Einar Gestur hefja störf hjá klúbbnum í febrúar/mars en frá þessu segir…Lesa meira

true

Gul viðvörun fyrsta dag ársins

Nýja árið á að byrja með hvelli í veðrinu en gul viðvörun er á öllu landinu á laugardag, 1. janúar. Við Faxaflóa og Breiðafjörð tekur viðvörunin gildi strax klukkan átta um morguninn og verður fram að miðnætti. Við Breiðafjörð er spáð norðaustan 15-23 m/s en hvassast verður norðan til við fjörðinn þar sem hviður geta…Lesa meira

true

Skagamenn mæta Stjörnunni í fyrstu umferð árið 2022

KSÍ hefur birt drög að niðurröðun leikja í efstu deildum karla og kvenna, Lengjudeildum karla og kvenna og 2. deild karla fyrir tímabilið 2022. Niðurröðun leikja í efstu deild karla tekur mið af því að samþykkt verði á ársþingi KSÍ að leika eftir breyttu fyrirkomulagi. Í nýju fyrirkomulagi verður fjölgun leikja en áfram tólf lið…Lesa meira

true

Aldrei fleiri greinst á einum degi

Alls greindust 838 með kórónuveiruna innanlands í gær. Aldrei hafa svo margir greinst með kórónuveiruna innanlands á einum sólarhring frá upphafi faraldursins. Fyrra met var 836 smit innanlands þann 27. desember. 386 af þeim 838 sem greindust í gær voru í sóttkví við greiningu eða 46%. 454 voru utan sóttkvíar eða 54%. Þetta kemur fram…Lesa meira

true

Nánast engar brennur á Vesturlandi um áramótin

Ljóst er að lítið verður um samkomur í tilefni áramótanna í ár vegna samkomutakmarkana. Skessuhorn kíkti aðeins á heimasíður sveitarfélaganna á svæðinu og skoðaði hvernig staðan er á Vesturlandi varðandi áramóta- og þrettándabrennur. Á Akranesi verður engin þrettándabrenna en Björgunarfélag Akraness verður með veglega flugeldasýningu á þrettándanum, fimmtudaginn 6. janúar klukkan 18, frá ysta hluta…Lesa meira

true

Ómar Ingi er Íþróttamaður ársins 2021

Samtök íþróttafréttamanna tilkynntu í gærkvöldi niðurstöðu í kjöri íþróttafréttamanna um Íþróttamann ársins 2021. Þau tíu sem höfnuðu í efstu sætunum í kjörinu voru: Aron Pálmarsson handknattleiksmaður, Bjarki Már Elísson handknattleiksmaður, Júlían J.K. Jóhannsson kraftlyftingamaður, Kári Árnason knattspyrnumaður, Kolbrún Þöll Þorradóttir fimleikakona, Kristín Þórhallsdóttir kraftlyftingakona, Martin Hermannsson körfuknattleiksmaður, Ómar Ingi Magnússon handknattleiksmaður, Rut Arnfjörð Jónsdóttir handknattleikskona…Lesa meira