Ómar Ingi er Íþróttamaður ársins 2021

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Samtök íþróttafréttamanna tilkynntu í gærkvöldi niðurstöðu í kjöri íþróttafréttamanna um Íþróttamann ársins 2021. Þau tíu sem höfnuðu í efstu sætunum í kjörinu voru: Aron Pálmarsson handknattleiksmaður, Bjarki Már Elísson handknattleiksmaður, Júlían J.K. Jóhannsson kraftlyftingamaður, Kári Árnason knattspyrnumaður, Kolbrún Þöll Þorradóttir fimleikakona, Kristín Þórhallsdóttir kraftlyftingakona, Martin Hermannsson körfuknattleiksmaður, Ómar Ingi Magnússon handknattleiksmaður, Rut Arnfjörð Jónsdóttir handknattleikskona og Sveindís Jane Jónsdóttir knattspyrnukona.\r\n\r\nÞað var Ómar Ingi Magnússon handknattleiksmaður sem varð efstur í kjörinu og hlaut þann eftirsótta titil, Íþróttamaður ársins 2021. Ómar Ingi keppir með Magdeburg í Þýskalandi. Hann var valinn í lið ársins í Þýskalandi. Í öðru sæti varð Kolbrún Þöll Þorradóttir fimleikakona og í þriðja sæti Kristín Þórhallsdóttir kraftlyftingakona úr Borgarfirði.\r\n\r\nÞað var kvennalandsliðið í hópfimleikum sem tók titilinn fyrir lið ársins að þessu sinni og þjálfari ársins var Þórir Hergeirsson þjálfari kvennaliðs Noregs í handknattleik.\r\n\r\n<strong>Einar í heiðurshöll ÍSÍ</strong>\r\n\r\nEinar Vilhjálmsson frjálsíþróttamaður var við sama tækifæri valinn í Heiðurshöll ÍSÍ og er hann 23. einstaklingurinn sem þann heiður hlýtur.\r\n\r\n<img class=\"alignnone size-medium wp-image-49929\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2021/12/Omar-Ingi-er-Ithrottamadur-arsins-2021_2-600x400.jpg\" alt=\"\" />",
  "innerBlocks": []
}
Ómar Ingi er Íþróttamaður ársins 2021 - Skessuhorn