Skagamenn mæta Stjörnunni í fyrstu umferð árið 2022

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "KSÍ hefur birt drög að niðurröðun leikja í efstu deildum karla og kvenna, Lengjudeildum karla og kvenna og 2. deild karla fyrir tímabilið 2022. Niðurröðun leikja í efstu deild karla tekur mið af því að samþykkt verði á ársþingi KSÍ að leika eftir breyttu fyrirkomulagi. Í nýju fyrirkomulagi verður fjölgun leikja en áfram tólf lið í deildinni. Þegar 22 umferðum er lokið verður deildin tvískipt en gert er ráð fyrir að tvískipta deildin hefjist fyrstu helgina í október. Keppni efstu deildar karla, sem hefur ekki enn fengið nafn, hefst 18. apríl (annan í páskum) og lýkur svo laugardaginn 17. september. Tvískipta deildin hefst sunnudaginn 2. október og lýkur laugardaginn 29. október.\r\n\r\nSkagamenn, sem leika í efstu deild karla, mæta Stjörnunni í fyrsta leik á útivelli þriðjudaginn 19. apríl og fyrsti heimaleikurinn er gegn Íslandsmeisturum Víkings sunnudaginn 24. apríl. Í næstsíðustu umferðinni mætir ÍA liði FH í Kaplakrika og síðasti leikur liðsins er heimaleikur gegn Leikni Reykjavík laugardaginn 17. september.\r\n\r\nVíkingur Ólafsvík hefur leik í 2. deild karla laugardaginn 7. maí á heimavelli gegn Völsungi frá Húsavík og síðasti leikur Víkings í deildinni verður í Ólafsvík gegn Haukum úr Hafnarfirði laugardaginn 17. september.\r\n\r\nÞá hafa leikdagar í Mjólkurbikar karla og kvenna fyrir árið 2022 verið ákveðnir. Úrslitaleikur Mjólkurbikars kvenna verður laugardaginn 27. ágúst en Breiðablik er ríkjandi bikakarmeistari. Aðalkeppni Mjólkurbikarsins (32-liða úrslit) hefst í lok maí en sjálf keppnin fer af stað í apríl. Úrslitaleikur Mjólkurbikars karla verður hins vegar laugardaginn 1. október en Víkingur Reykjavík er ríkjandi Íslands- og bikarmeistari en liðið vann ÍA í úrslitaleik Mjólkurbikarsins í október á þessu ári.",
  "innerBlocks": []
}
Skagamenn mæta Stjörnunni í fyrstu umferð árið 2022 - Skessuhorn