Aldrei fleiri greinst á einum degi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Alls greindust 838 með kórónuveiruna innanlands í gær. Aldrei hafa svo margir greinst með kórónuveiruna innanlands á einum sólarhring frá upphafi faraldursins. Fyrra met var 836 smit innanlands þann 27. desember. 386 af þeim 838 sem greindust í gær voru í sóttkví við greiningu eða 46%. 454 voru utan sóttkvíar eða 54%.\r\n\r\nÞetta kemur fram á covid.is en nú eru 6.368 í einangrun á landinu vegna Covid-19, samanborið við 5.534 í gær. 7.768 eru nú í sóttkví en voru 7.710 í gær. 449 eru nú í skimunarsóttkví. 21 sjúklingur liggur nú inni á sjúkrahúsi sem er sami fjöldi og í gær og þá eru sex á gjörgæslu sem er einnig sami fjöldi og í gær. 87 greindust á landamærunum í gær, 86 virk smit í fyrri landamæraskimun og eitt í seinni.\r\n\r\nAlls hafa 27.059 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar á síðasta ári. Þá hafa 37 andlát verið rakin til Covid-19 hér á landi frá upphafi faraldursins.",
  "innerBlocks": []
}
Aldrei fleiri greinst á einum degi - Skessuhorn