{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Einar Gestur Jónasson hefur verið ráðinn vallarstjóri hjá Golfklúbbnum Leyni á Akranesi en um heilsárs starf er að ræða og felur í sér faglega umsjón Garðavallar sem og mannaforráð sumarstarfsmanna. Samkomulag milli Einars Gests og Golfklúbbsins Leynis var handsalað í gær og mun Einar Gestur hefja störf hjá klúbbnum í febrúar/mars en frá þessu segir á heimasíðu golfklúbbsins.\r\n\r\nEinar Gestur er menntaður grasvallafræðingur og lauk námi frá SRUC Elmwood College í Skotlandi árið 2005. Hann hefur víðtæka reynslu í sínu fagi og hefur meðal annars starfað hjá Golfklúbbi Húsavíkur, Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, Golfklúbbi Mosfellsbæjar og nú síðast Golfklúbbi Brautarholts sem vallarstjóri. Þá hefur hann einnig starfað við golfvelli í Skotlandi með námi og í Noregi. Einar Gestur er uppalinn á Húsavík en hefur búið með eiginkonu sinni og þremur börnum á Akranesi í nokkur ár.",
"innerBlocks": []
}
Golfklúbburinn Leynir kominn með vallarstjóra - Skessuhorn