{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Ljóst er að lítið verður um samkomur í tilefni áramótanna í ár vegna samkomutakmarkana. Skessuhorn kíkti aðeins á heimasíður sveitarfélaganna á svæðinu og skoðaði hvernig staðan er á Vesturlandi varðandi áramóta- og þrettándabrennur.\r\n\r\nÁ Akranesi verður engin þrettándabrenna en Björgunarfélag Akraness verður með veglega flugeldasýningu á þrettándanum, fimmtudaginn 6. janúar klukkan 18, frá ysta hluta aðalhafnargarðs Akraneshafnar. Kjör íþróttamanns Akraness verður streymt í gegnum ÍATV frá Garðavöllum á þrettándanum og hefst streymið 15 mínútum eftir lok flugeldasýningar eða um kl. 18.15.\r\n\r\nÍ Borgarbyggð verður ekki formleg dagskrá í tilefni að þrettándanum eins og hefð er fyrir. Borgarbyggð hvetur íbúa hins vegar til þess að fagna síðasta degi jóla með sínu nánasta fólki. Útivistarsvæðin í sveitarfélaginu eru svo sannarlega tilvalin til þess, til dæmis ganga strandlengjuna í Borgarnesi, grilla sykurpúða í Einkunnum eða fá sér heitt kakó og smákökur í Skallagrímsgarði.\r\n\r\nÍ Stykkishólmi hefur verið ákveðið að halda ekki áramótabrennu í ár í ljósi aukinna samkomutakmarkana og smita í landinu. Gert er ráð fyrir bjartviðri á gamlársdag í Stykkishólmi, hægum vindi og lítils háttar úrkomu og því kjöraðstæður fyrir útivist með fjölskyldunni. Sundlaugin verður opin frá klukkan tíu til tólf og því kjörið að taka síðasta bað ársins þar.\r\n\r\nÍ Grundarfirði verður engin brenna á þrettándanum eins og venjan hefur verið en ungbarnagjafir verða keyrðar út á morgun, gamlársdag, milli 11 og 12 en þær fá öll börn sem hafa fæðst á árinu úr Grundarfirði. Íþróttamaður Grundarfjarðar verður kjörinn við hátíðlega athöfn í Sögumiðstöðinni á morgun klukkan 10. Vegna samkomutakmarkana verður bein útsending frá viðburðinum.\r\n\r\nÍ Snæfellsbæ verður áramótabrenna á Breið fyrir ofan Rif eins og undanfarna áratugi. Í ár verður svo kölluð bílabrenna en hún var haldin í fyrsta skipti í fyrra. Hefst hún klukkan 18 annað kvöld og er þetta eina áramótabrennan á Vesturlandi sem vitað er um að verði haldin þetta árið.\r\n\r\nÍ Dalabyggð verður engin flugeldasýning og áramótabrenna í ár í ljósi aðstæðna í samfélaginu. Því er beint til íbúa sem hyggjast skjóta flugeldum upp sjálfir að safnast ekki saman í hópa, halda fjarlægð við þá sem ekki eru í jólakúlunni þeirra og viðhafa grímunotkun þar sem því verður ekki við komið og ítrekað að klára árið saman eftir settum reglum og tilmælum.\r\n\r\nÁ Reykhólum verður ekki áramótabrenna á flokkunarsvæðinu að þessu sinni vegna samkomutakmarkana. Reykhólahreppur óskar öllum gleði og gæfuríks árs.",
"innerBlocks": []
}
Nánast engar brennur á Vesturlandi um áramótin - Skessuhorn