Alþjóða dagur punktaleturs er í dag

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í dag, 4. janúar, er alþjóðadagur punktaleturs, eða blindraleturs eins og flestir kalla það. Viðburðurinn er haldinn ár hvert til að auka vitund um mikilvægi blindraleturs sem samskiptatækis til að auka mannréttindi blindra og sjónskertra.\r\n\r\nÞað var Frakkinn Louis Braille (1809-1852) sem var blindur á báðum augum. Þegar hann var 16 ára gamall fann hann upp blindraletrið eða punktaletrið. Þessi alþjóðlegi dagur var afmælisdagur Braille. Grunnurinn í letrinu eru sex upphafnir punktar sem raðað er í tvær raðir lóðrétt með þremur punktum í hverri röð innan ferhyrnds svæðis. Munstrið má síðan nema með fingurgómum. Kerfi Braille byggði á 12 punkta hermerkjakerfi sem landi hans Charles Barbier útbjó fyrir Napóleon en þótti allt of flókið. Braille einfaldaði kerfið til muna með því að nota einungis sex punkta. Þetta kerfi sem kennt er við hann gerir enn þann dag í dag blindum og sjónskertum kleift að lesa og skrifa.\r\n\r\nBlindraleturskerfið er þekkt og viðurkennt víða um heim. Finna má það víða til dæmis á lyfjapakkningum, í lyftum, á leiðbeiningarskiltum, vegvísum o.s.frv.\r\n\r\n<strong>Íslenskt blindraletur</strong>\r\n\r\nÍslenskt punktaletur er fyrsta ritmál þeirra sem þurfa að reiða sig á það til tjáningar og samskipta. Íslenska blindraletrið á rætur að rekja til franska blindraletursins að viðbættum nokkrum séríslenskum stöfum. Þann 27. maí árið 2011 lögfesti Alþingi íslenskt punktaletur sem fullgilt íslenskt ritmál. Það segir að; „…hver sem hefur þörf fyrir blindralestur vegna skerðingar á sjón skal eiga þess kost að læra og nota íslenskt punktaletur um leið og hann hefur getu til.“",
  "innerBlocks": []
}
Alþjóða dagur punktaleturs er í dag - Skessuhorn