
Harpa Dögg er Íþróttamaður Grundarfjarðar árið 2021. Ljósm. Erna Sigurðardóttir
Harpa Dögg kjörin Íþróttamaður Grundarfjarðar
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á gamlársdag var tilkynnt í Sögumiðstöðinni í Grundarfirði hver hefði verið valinn Íþróttamaður Grundarfjarðarðar árið 2021. Þrír íþróttamenn voru tilnefndir: Breki Þór Hermannsson fyrir knattspyrnu, Dagný Rut Kjartansdóttir fyrir riffilskotfimi/leirdúfuskotfimi og Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir fyrir hestamennsku. Það voru þær Ingibjörg Eyrún Bergvinsdóttir og Ragnheiður Dröfn Benidiktsdóttir frá Íþrótta- og æskulýðsnefnd Grundarfjarðar sem stjórnuðu athöfninni af röggsemi. Þær tilkynntu að lokum um úrslit kjörsins og var það hestakonan Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir sem var kjörin Íþróttamaður Grundarfjarðar fyrir árið 2021.\r\n\r\nÍ umsögn um Hörpu vegna kjörsins kom fram að hún hafi verið í fremstu röð undanfarin ár í sínum aldursflokki en hún er fimmtán ára. Harpa keppir í Meistaradeild Líflands og æskunnar sem er keppni í efsta standard í þessum aldurshópi og þar sigraði hún í fjórgangskeppninni með glæsibrag. Á Fjórðungsmóti Vesturlands, sem var stærsti viðburður i gæðingakeppni sumarið 2021, var hún í úrslitum í unglingaflokki og var auk þess í 1. - 2. sæti í tölti. Á Reykjavíkurmeistaramóti, sem er WR mót og eitt stærsta mót ársins, var Harpa í úrslitum í öllum þeim greinum sem hún tók þátt í og er því svo sannarlega búin að stimpla sig inn í röð sterkustu knapa í sínum aldursflokki. Síðastliðin þrjú tímabil hefur Harpa Dögg verið valin til að taka þátt í hæfileikamótun Landssambands hestamanna en þar eru sterkustu knapar á aldrinum 14-17 ára saman í afrekshóp sem jafngildir landsliðshópi fyrir þennan aldurshóp. Harpa Dögg þjálfar sín hross sjálf og leggur mikinn tíma, metnað og ástríðu í vinnuna.",
"innerBlocks": []
}