{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Svandís Svavarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað starfshóp sem hefur það hlutverk að fjalla um blóðtöku á fylfullum hryssum. Hópnum er ætlað að skoða starfsemina, regluverkið og eftirlitið í kring um hana. Í hópnum eiga sæti þau Iðunn Guðjónsdóttir, sérfræðingur í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu sem er formaður hópsins, skipuð án tilnefningar, Sigríður Björnsdóttir, yfirdýralæknir í hrossasjúkdómum hjá Matvælastofnun (tilnefnd af MAST) og Ólafur Páll Jónsson, prófessor við Háskóla Íslands, tilnefndur af Siðfræðistofnun Háskóla Íslands.\r\n\r\nRáðherra hefur falið hópnum að funda með hagaðilum auk þess sem almenningi mun gefast kostur á að tjá sig um störf og tillögur hópsins á Samráðsgátt stjórnvalda þegar þær liggja fyrir. Starfshópurinn mun hefja störf á næstu dögum og er ætlað að skila ráðherra tillögum sínum fyrir 1. júní nk. Verkefni starfshópsins er aðskilið rannsókn Matvælastofnunar, en stofnunin rannsakar nú meint alvarleg brot á velferð blóðtökuhryssa.",
"innerBlocks": []
}
Starfshópur um blóðtöku hefur vinnu sína - Skessuhorn