Von er á djúpri lægð á fimmtudaginn

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Á fimmtudagsmorgun má búast við að djúp lægð komi inn á landið, að því er fram kemur í frétt á blika.is. Þar segir að dýpri lægðir sjáist varla. Um er að ræða lægð sem hefur verið að valda miklu vetrarveðri á austurströnd Bandaríkjanna en lægðin mun svo halda áfram upp með ströndinni og suður fyrir Nýfundnaland. „Þar mætir heit lægðin mjög köldu lofti og dýpkar hratt á miðvikudag. Á fimmtudagsmorgun er lægðarmiðjunni svo spáð vestur af Faxaflóa. Standist spárnar þá verður þrýstingur í lægðarmiðjunni í kringum 925 hPa,“ segir í fréttinni á blika.is. En svo djúpar lægðir eru ekki algengar, ef frá eru taldir fellibyljir þar sem þrýstingur getur farið niður fyrir 900 hPa. Lægðin mun dýpka hratt og er erfitt að spá fyrir um það núna hversu hvasst verður og hvar versta veðrið kemur til með að verða. „Líklegt verður að teljast að veður verði mjög vont auk þess sem óvenju há sjávarstaða gæti valdið vandræðum.“",
  "innerBlocks": []
}
Von er á djúpri lægð á fimmtudaginn - Skessuhorn