Fréttir

true

Snæfellskonur komnar í undanúrslit í VÍS bikarnum

Stjarnan og Snæfell mættust í gær í 8-liða úrslitum VÍS bikars kvenna í körfuknattleik og fór leikurinn fram í Garðabæ. Mikil spenna var í loftinu enda mikið undir, sæti í undanúrslitum í húfi en Snæfell fagnaði sigri í bikarnum í fyrsta og eina skiptið árið 2016. Í fyrsta leikhluta var jafnt á nánast öllum tölum,…Lesa meira

true

Félag eldri borgara og starfsmannafélag slökkviliðsins í samstarf

Grundarfjarðarbær og Starfsmannafélag Slökkviliðs Grundarfjarðar eru þessa dagana að ýta úr vör átaksverkefni um bættar eldvarnir með Félagi eldri borgara í Grundarfirði. Verkefnið er sett þannig upp að Starfsmannafélag Slökkviliðs Grundarfjarðar býður eldri íbúum bæjarins að endurnýja reykskynjara á heimilum þeirra. Reykskynjararnir eru gjöf frá starfsmannafélaginu og verða settir upp þeim að kostnaðarlausu. Grundarfjarðarbær leggur…Lesa meira

true

Gísli og Carmen sungu Jólin koma með þér

Þrettándi gluggi jóladagatals Akurnesinga, Skaginn syngur inn jólin var opnaður í morgun. Það voru þau Díana Carmen Llorens Izaguirre og Gísli J. Guðmundsson sem opnuðu gluggann með laginu laginu Jólin koma með þér. Þau Carmen og Gísli eru reyndar þekktari fyrir að snyrta hár en að syngja og starfa saman á Rakarastofu Gísla. Þau hafa…Lesa meira

true

Dóra setti í dag Íslandsmet í langlífi

Dóra Ólafsdóttir á lögheimili á Ægissíðu í Hvalfjarðarsveit en dvelur á hjúkrunarheimilinu Skjóli í Reykjavík. Í dag hefur hún nú náð hærri aldri en nokkur annar Íslendingur búsettur hér á landi. Dóra er fædd 6. júlí 1912 í Suður-Þingeyjarsýslu og er því orðin 109 ára og 160 dögum betur. Jensína Andrésdóttir á Hrafnistu í Reykjavík…Lesa meira

true

Skagamenn töpuðu fyrir Selfossi

Skagamenn heimsóttu lið Selfyssinga í Vallaskóla á Selfossi á laugardaginn í 1. deild karla í körfuknattleik og lauk leiknum með öruggum sigri heimamanna, 109:73. Selfoss er nú í fimmta sæti deildarinnar með 14 stig á meðan Skagamenn sitja fast á botninum án stiga. Það sást fljótlega hvert stefndi því eftir rúmlega fimm mínútna leik var…Lesa meira

true

Útvarpsþættir um jólin um litríka sögu Sonju de Zorrilla

Sonja de Zorrilla varð þjóðþekkt eftir að ævisaga hennar, rituð af Reyni Traustasyni, kom út árið 2002. Sonja lifði ævi sem var lyginni líkust. Hún bjó í Þýskalandi fyrir seinni heimsstyrjöldina, bjó heilt ár á Ritz hótelinu í London, sótti boð fína og fræga fólksins í París og fylgdist með tískusýningum Coco Chanel. Þegar hún…Lesa meira

true

Kristín Evrópumeistari í kraftlyftingum

Borgfirðingurinn Kristín Þórhallsdóttir varð í morgun Evrópumeistari í klassískum kraftlyftingum kvenna í mínus 84 kg flokki í samanlögðu og setti í leiðinni nýtt Evrópumet, en mótið fer fram í Svíþjóð. Kristín lyfti af miklu öryggi þremur lyftum í hnébeygju, 200 kg, 212,5 kg og 220 kg sem er nýtt Evrópumet. Í bekkpressu lyfti hún 102,5…Lesa meira

true

Markaðsstemning á Akranesi um helgina

Nú um helgina eru haldnir jólamarkaðir á a.m.k. tveimur stöðum á Akranesi. Vegna veðurs í gær var markaður sem vera átti á Akratorgi færður inn í hlýjuna í gamla Landsbankahúsið við torgið. Þá er einnig markaður um helgina á gömlu Kaffi Mörk, við Skólabraut 14. Meðfylgjandi myndir voru teknar síðdegis í gær og tala sínu…Lesa meira

true

Bernskujól í frumflutningi Ástu Marýjar Stefánsdóttur

Tólfti glugginn í jóladagatalinu Skaginn syngur inn jólin var opnaður í morgun. Þar frumflutti Ásta Marý Stefánsdóttir í Skipanesi lagið Bernskujól. Lag og texti er eftir Möggu Sigurbjörgu Brynjólfsdóttur bónda og skáld í Túnsbergi, en hún er föðuramma litla drengsins hennar Ásta Marýjar; Stefáns Svan, sem lést í barnæsku. Lagið syngur Ásta Marý en það…Lesa meira

true

Skallagrímur með góðan sigur gegn Hamri

Skallagrímur og Hamar úr Hveragerði léku í gærkvöldi í 1. deild karla í körfuknattleik og fór leikurinn fram í Fjósinu í Borgarnesi. Fyrir leikinn höfðu Skallagrímsmenn tapað síðustu þremur leikjum sínum í deildinni og Hamarsmenn tapað síðustu sex leikjum þannig að það var ljóst að það var mikið í húfi til að ná að stöðva…Lesa meira