Það var hart barist í Garðabænum í gær. Ljósm. karfan.is

Snæfellskonur komnar í undanúrslit í VÍS bikarnum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Stjarnan og Snæfell mættust í gær í 8-liða úrslitum VÍS bikars kvenna í körfuknattleik og fór leikurinn fram í Garðabæ. Mikil spenna var í loftinu enda mikið undir, sæti í undanúrslitum í húfi en Snæfell fagnaði sigri í bikarnum í fyrsta og eina skiptið árið 2016. Í fyrsta leikhluta var jafnt á nánast öllum tölum, munurinn aldrei meiri en þrjú stig á milli liðanna og staðan jöfn við flautið, 17:17. Spennan hélt áfram í öðrum leikhluta en Stjarnan þó ívið sterkari og fór með fimm stiga forskot inn í hálfleikinn, staðan 37:32 fyrir Stjörnuna.\r\n\r\nSnæfellskonur voru ekki á þeim buxunum að gefast upp og náðu með mikilli seiglu að koma sér inn í leikinn aftur og staðan hnífjöfn fyrir lokasprettinn, 50:50. Þegar rúmlega þrjár mínútur voru eftir af leiknum var Stjarnan komin með sjö stiga forystu, 61:54 og virtust vera að sigla sigri í höfn. En Snæfellskonur komu enn á ný til baka, náðu að jafna 61:61 þegar tvær mínútur voru eftir og tryggðu glæsilegan sigur með því að skora síðustu sex stig leiksins, lokatölur 61:67 Snæfelli í vil.\r\n\r\nStigahæstar hjá Snæfelli voru þær Sianni Martin með 19 stig, Rebekka Rán Karlsdóttir með 18 stig og þær Minea Takala og Helga Hjördís Björgvinsdóttir voru með 9 stig hvor. Hjá Stjörnunni var Diljá Ögn Lárusdóttir með 19 stig og þær Myia Starks og Elva Lára Sverrisdóttir voru með 15 stig hvor.\r\n\r\nLiðin fjögur sem eftir eru í pottinum auk Snæfells eru úrvalsdeildarliðin Haukar, Breiðablik og Njarðvík en dregið verður í undanúrslitum karla og kvenna í hádeginu á morgun.",
  "innerBlocks": []
}
Snæfellskonur komnar í undanúrslit í VÍS bikarnum - Skessuhorn