
F.v. Guðmundur Reynisson varðstjóri, Ragnheiður Sigurðardóttir formaður Félags eldri borgara og Valgeir Magnússon slökkviliðsstjóri. Ljósm. tfk.
Félag eldri borgara og starfsmannafélag slökkviliðsins í samstarf
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Grundarfjarðarbær og Starfsmannafélag Slökkviliðs Grundarfjarðar eru þessa dagana að ýta úr vör átaksverkefni um bættar eldvarnir með Félagi eldri borgara í Grundarfirði. Verkefnið er sett þannig upp að Starfsmannafélag Slökkviliðs Grundarfjarðar býður eldri íbúum bæjarins að endurnýja reykskynjara á heimilum þeirra. Reykskynjararnir eru gjöf frá starfsmannafélaginu og verða settir upp þeim að kostnaðarlausu. Grundarfjarðarbær leggur til vinnu slökkviliðsmann við uppsetningu og útskiptingu á reykskynjurum á heimilum eldri borgaranna. Einnig mun Grundarfjarðarbær og Slökkviliðið bjóða upp á almenna eldvarnarfræðslu og kennslu í notkun á slökkvitækja og eldvarnarteppa.\r\n\r\nFélag eldri borgara mun kynna þetta verkefni fyrir félagsmönnum sínum á fundi þann 22. desember næstkomandi og eftir það verður tekið á móti pöntunum. Grundarfjarðarbær hefur verið að leggja aukna áherslu á forvarnir og er þetta verkefni hluti af því. Starfsmannafélag slökkviliðsins hefur undanfarin ár staðið fyrir sölu á dagatali þar sem ágóðinn er nýttur til góðra verka eins og þetta verkefni er.",
"innerBlocks": []
}