{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Þrettándi gluggi jóladagatals Akurnesinga, Skaginn syngur inn jólin var opnaður í morgun. Það voru þau Díana Carmen Llorens Izaguirre og Gísli J. Guðmundsson sem opnuðu gluggann með laginu laginu Jólin koma með þér. Þau Carmen og Gísli eru reyndar þekktari fyrir að snyrta hár en að syngja og starfa saman á Rakarastofu Gísla. Þau hafa þó bæði sungið lengi. Carmen sagði þegar þau ræddu við Óla Palla og Hlédísi að þetta væri uppáhaldsjólalagið hans Gísla og hún hafi leyft honum að ráða.",
"innerBlocks": []
}
Gísli og Carmen sungu Jólin koma með þér - Skessuhorn