
Þessa mynd af Dóru, 107 ára, tók Áskell sonur hennar. Í bakgrunninum er skráning fæðingar og skírnar í prestsþjónustubók Grenivíkurprestakalls.
Dóra setti í dag Íslandsmet í langlífi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Dóra Ólafsdóttir á lögheimili á Ægissíðu í Hvalfjarðarsveit en dvelur á hjúkrunarheimilinu Skjóli í Reykjavík. Í dag hefur hún nú náð hærri aldri en nokkur annar Íslendingur búsettur hér á landi. Dóra er fædd 6. júlí 1912 í Suður-Þingeyjarsýslu og er því orðin 109 ára og 160 dögum betur. Jensína Andrésdóttir á Hrafnistu í Reykjavík átti áður Íslandsmetið, 109 ár og 159 daga, en hún lést vorið 2019. Í rúma fjóra áratugi starfaði Dóra sem talsímavörður hjá Landsímanum á Akureyri. Þórir Áskelsson eiginmaður hennar var sjómaður og seglasaumari. Hann var m.a. áhugamaður um íslenskt mál og vinur Davíðs Stefánssonar skálds.\r\n\r\nÁ vefsíðunni Langlífi er rifjað upp að Þórir og Dóra voru gefin saman í hjónaband 15. febrúar 1943, bæði um þrítugt. Þau bjuggu á Norðurgötu 53. Þórir dó í desember 2000, 89 ára. Þegar Dóra var hundrað ára flutti hún til Áskels sonar síns sem þá bjó í Kópavogi, en býr nú í Hvalfjarðarsveit. Ása dóttir Dóru býr í Bandaríkjunum. Síðar sama ár fór Dóra á Skjól.\r\n\r\nDóra hefur sagt í blaðaviðtölum að á æskuheimilinu hafi hún alltaf fengið hollan mat og að nýmeti hafi oft verið á borðum. Dóra telur að langt líf sé ekki síður að þakka reglulegri hreyfingu en hún gekk alltaf milli heimilis og vinnustaðar og fór reglulega í sund. Áskell sonur Dóru segir að hún sé hress miðað við þennan háa aldur. Um daginn fór hún í margs konar rannsóknir hjá Íslenskri erfðagreiningu og kom meðal annars fram að hún væri með sterkt hjarta.\r\n\r\n„Dóra er áttundi elsti íbúi á Norðurlöndum, elst er sænsk kona sem er rúmum fjórum mánuðum eldri. Aðeins einn Íslendingur hefur náð hærri aldri en Dóra. Það er Guðrún Björg Björnsdóttir sem var á fjórða ári þegar hún flutti með foreldrum sínum frá Vopnafirði til Vesturheims og var orðin 109 ára og 310 daga þegar hún lést, í ágúst 1998, á dvalarheimilinu Betel í Gimli í Manitoba í Kanada. Dóra getur bætt það met í maí á næsta ári,“ segir á Facebook síðunni Langlífi.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_49566\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-49566 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2021/12/Dora-setur-Islandsmet-i-langlifi_2-600x542.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"542\" /> Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra heimsótti Dóru í dag. Ljósm. áþ.[/caption]",
"innerBlocks": []
}