
Bryan Battle var öflugur í liði Skallagríms gegn Hamri. Ljósm. glh
Skallagrímur með góðan sigur gegn Hamri
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Skallagrímur og Hamar úr Hveragerði léku í gærkvöldi í 1. deild karla í körfuknattleik og fór leikurinn fram í Fjósinu í Borgarnesi. Fyrir leikinn höfðu Skallagrímsmenn tapað síðustu þremur leikjum sínum í deildinni og Hamarsmenn tapað síðustu sex leikjum þannig að það var ljóst að það var mikið í húfi til að ná að stöðva taphrinu liðanna. Skallagrímsmenn mættu grimmir til leiks, komust í 8:0 og um miðjan leikhlutann var staðan orðin 21:11. Hamar náði að minnka muninn í fjögur stig, 21:17 en þá tóku heimamenn smá kipp og staðan 29:22 eftir fyrsta fjórðung. Hamar náði síðan aftur að minnka muninn og nú í tvö stig eftir fimm mínútna leik, 43:41. En þá sögðu Skallagrímsmenn hingað og ekki lengra, skoruðu 19 stig gegn aðeins fjórum frá Hamarsmönnum og staðan í hálfleik, 62:45 Skallagrími í vil.\r\n\r\nÍ þriðja leikhluta var jafnt á með liðunum, liðin skoruðu á víxl og gestirnir náðu að minnka forskotið í tíu stig um tíma en nær komust þeir ekki. Skallagrímur gaf aftur í og staðan fyrir síðasta leikhlutann, 84:68. Í honum var farið að draga af Hamarsmönnum og þeir höfðu engan kraft í það að koma til baka. Það sem gerði gæfumuninn í þessum leik var afar góð liðsheild, leikgleði og mikil barátta leikmanna Skallagríms allan tímann og kannski var kominn tími á að þeir sýndu loksins sitt rétta andlit.\r\n\r\nStigahæstir í liði Skallagríms voru þeir Bryan Battle með 31 stig, Simun Kovac með 20 stig og 11 fráköst og Davíð Guðmundsson með 15 stig. Hjá Hamri var Dareial Franklin með 36 stig og 10 fráköst, Joao Lucas með 26 stig og Ragnar Magni Sigurjónsson með 15 stig.\r\n\r\nNæstu leikur Skallagríms og síðasti leikur fyrir jól er næsta fimmtudag gegn toppliði Hauka á Ásvöllum í Hafnarfirði og hefst leikurinn klukkan 19.30.",
"innerBlocks": []
}