Kristín Evrópumeistari í kraftlyftingum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Borgfirðingurinn Kristín Þórhallsdóttir varð í morgun Evrópumeistari í klassískum kraftlyftingum kvenna í mínus 84 kg flokki í samanlögðu og setti í leiðinni nýtt Evrópumet, en mótið fer fram í Svíþjóð. Kristín lyfti af miklu öryggi þremur lyftum í hnébeygju, 200 kg, 212,5 kg og 220 kg sem er nýtt Evrópumet. Í bekkpressu lyfti hún 102,5 kg, 110 kg og 115 kg en það er bæting á Íslandsmeti. Kristín lyfti síðan í réttstöðunni 212 kg og 225 kg sem er nýtt Íslandsmet og tryggði henni 560 kg í samanlögðu sem er nýtt Evrópumet í hennar flokki. Hún endaði á góðri tilraun til að ná Evrópumetinu í réttstöðulyftu með að reyna að lyfta 230,5 kg en mistókst naumlega.\r\n\r\nUppskera dagsins hjá þessari mögnuðu kraftlyftingakonu er Evrópumeistaratitill, gull í öllum greinum, tvö Evrópumet og Íslandsmet í öllum greinum. Kristín braut í morgun blað í sögu kraftlyftinga á Íslandi því hún er fyrst allra til að vinna titil í þríþraut.",
  "innerBlocks": []
}
Kristín Evrópumeistari í kraftlyftingum - Skessuhorn