
Sonja de Zorilla.
Útvarpsþættir um jólin um litríka sögu Sonju de Zorrilla
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Sonja de Zorrilla varð þjóðþekkt eftir að ævisaga hennar, rituð af Reyni Traustasyni, kom út árið 2002. Sonja lifði ævi sem var lyginni líkust. Hún bjó í Þýskalandi fyrir seinni heimsstyrjöldina, bjó heilt ár á Ritz hótelinu í London, sótti boð fína og fræga fólksins í París og fylgdist með tískusýningum Coco Chanel. Þegar hún flúði seinni heimsstyrjöldina og stefndi heim fór hún í gegnum Bandaríkin, þar sem hún síðan dvaldi í tugi ára og hagnaðist vel á fjárfestingum. Þegar hún lést voru eignir hennar metnar á tæplega 9,5 milljarða króna, samkvæmt bókinni Ríkir Íslendingar. Á núvirði er auður Sonju metinn á um 24 milljarða króna. Peningarnir voru settir í sjóð, Sonja Foundation, sem átti að vera til styrktar börnum. En síðan þá hefur lítið heyrst af sjóðsúthlutunum, hvorki hér á Íslandi né í Bandaríkjunum.\r\n\r\nÍ fjögurra þátta útvarpsseríu á Rás 1 um jólin verður farið yfir ævi Sonju og þess freistað að komast á slóð auðæfa hennar. Sæunn Gísladóttir, hagfræðingur og blaðamaður, og Katrín Lilja Jónsdóttir, sagnfræðingur og blaðamaður, leita svara í þættinum. Katrín Lilja er stofnandi og ritstjóri vefsíðunnar Lestrarklefans og Sæunn er fastapenni á síðunni. Sæunn skrifaði fyrst um ævisögu Sonju þar og gat ekki gleymt henni. Þegar Katrín Lilja las bókina í kjölfar þess heillaðist hún líka af viðfangsefninu.\r\n\r\nÞættirnir um Sonju eru unnir síðastliðið sumar og haust og viðtöl öll tekin þá. Auk þess sækja þær heimildir í dagblöð frá tímanum og styðjast við ævisögu Sonju sem kom út 2002. Þættirnir verða í loftinu klukkan 16:05 dagana 25., 26., 27. og 28. desember. Þeir verða einnig aðgengilegir í helstu hlaðvarpsveitum og í sarpi RÚV.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_49545\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-49545 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2021/12/Utvarpsthaettir-um-jolin-um-litrika-sogu-Sonju-de-Zorrilla_1-600x432.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"432\" /> Katrín Lilja Jónsdóttir og Sæunn Gísladóttir munu í fjórum útvarpsþáttum sem fluttir eru um jólin segja sögu Sonju de Zorrilla.[/caption]",
"innerBlocks": []
}