Fréttir

true

Helgi Laxdal kjörinn fimleikamaður ársins 2021

Fyrir helgi greindi stjórn Fimleikasambands Íslands frá því að Helgi Laxdal Aðalgeirsson og Kolbrún Þöll Þorradóttir hafi verið útnefnd sem fimleikakarl og fimleikakona ársins 2021. Helgi Laxdal og Kolbrún Þöll æfa og keppa bæði með liði Stjörnunnar úr Garðabæ. Í öðru sæti karla megin í kjörinu var Valgarð Reinhardsson og Einar Ingi Eyþórsson í því…Lesa meira

true

Iddi Biddi flutti lagið (Jóla)þorpið

Ellefti gluggi jóladagatals Akurnesinga, Skaginn syngur inn jólin, var opnaður í morgun. Þar fór Ingi B fyrir Kór iðnaðarmanna þegar þeir fluttu lagið (Jóla)þorpið. Ingi B eða Ingi Björn Róbertsson, nú eða Iddi Biddi eins og flestir þekkja hann, er fjöllistamaður auk þess að vera blikksmiður. Hann er trommuleikari, dj og veislustjóri auk þess að…Lesa meira

true

Slitnar upp úr kjaraviðræðum kennara við sveitarfélög

Í morgun sleit Félag grunnskólakennara kjaraviðræðum við Samband íslenskra sveitarfélaga (SÍS), en kjarasamningur aðila rennur út um næstu áramót. Í tilkynningu frá SÍS kemur fram að grunnskólakennara hafna Lífskjarasamningi og slíta af þeim sökum kjaraviðræðum við sambandið. „Samband íslenskra sveitarfélaga hefur lagt fram tilboð á grunni Lífskjarasamnings er gildir frá 1. janúar 2022 til 31.…Lesa meira

true

Vestlenskur fjölskyldufaðir datt í lukkupottinn

Í gær var dregið í Happdrætti Háskóla Íslands. Happdrættið hafði boðað að dreginn yrði út stærsti vinningur í sögu happdrættisins, 110 milljónir króna. Það varð til að margir freistuðu gæfunnar og keyptu miða skömmu fyrir stóra útdráttinn. En sá heppni reyndist einstaklingur sem spilað hefur í happdrætti HHÍ í áratugi. Hann er í tilkynningu frá…Lesa meira

true

Tilnefningar óskast um Vestlending ársins 2021

Enn á ný mun Skessuhorn gangast fyrir vali á Vestlendingi ársins. Í lok hvers árs hefur verið kallað eftir tilnefningum frá almenningi um einstakling, eða hóp, sem verðskuldað gæti þetta sæmdarheiti fyrir framgöngu sína í starfi og/eða leik. Skilyrði er að sá sem tilnefndur er sé búsettur á Vesturlandi. Jafnframt er óskað eftir einni setningu…Lesa meira

true

Jólapeysudagur í FSN

Nemendur og starfsfólk í Fjölbrautaskóla Snæfellinga nýttu síðasta hefðbundna kennsludaginn í skólanum til klæðast jólapeysum og -húfum. Töluvert betri þátttaka var hjá starfsfólki að þessu sinni ef tölfræðin er skoðuð en nánast allir kennararnir skörtuðu jólapeysu. Skemmtileg tilbreyting á aðventunni hjá starfsfólki og nemendum í FSN. Skrautlegur hópur starfsmanna stilltu sér upp fyrir ljósmyndara áður…Lesa meira

true

Ronja Ræningjadóttir sýnd í Tónlistarskóla Borgarfjarðar um helgina

Nú um helgina sýnir Söngleikjadeild Tónlistarskóla Borgarfjarðar söngleik um Ronju Ræningjadóttur. Sagan er eins og flestir vita eftir Astrid Lindgren og tónlistin í sýningunni er meðal annars eftir þá Sebastian, Ostergren og Venge. Þýðing texta er eftir Þorleif Arnarsson og Sigríður Ásta Olgeirsdóttir setti leikgerðina saman fyrir söngleikjadeildina og leikstýrir jafnframt söngleiknum, en frá þessu…Lesa meira

true

Magga og Stúfarnir

Magný Guðmunda Þórarinsdóttir, eða Magga dagmamma á Akranesi eins og hún er betur þekkt, fer ár hvert í aðdraganda jóla með litlu Stúfana sína í göngutúr um Akranes. Hún hefur einatt vakið athygli þegar hún fer með börnin út að ganga í jólasveinabúningunum en búningana keypti hún fyrir rúmum tíu árum síðan. Seinna gáfu foreldrar…Lesa meira

true

Mæðrastyrksnefnd berast gjafir í aðdraganda jólaúthlutunar

Síðdegis í gær afhentu fulltrúar úr Kiwanisklúbbnum Þyrli á Akranesi Mæðrastyrksnefnd Akraness peningagjöf. Klúbburinn hefur í áravís verið árlegur stuðningsaðili Mæðrastyrksnefndar. Jafnvel þótt að félagsstarf Þyrils hafi verið með minnsta móti frá því kóvid faraldurinn hófst, og því litlu verið safnað í gjafasjóð, náðu klúbbfélagar að öngla saman 250 þúsund krónum sem þeir færðu Mæðrastyrksnefnd.…Lesa meira

true

Samhugur í Borgarbyggð

Á síðasta ári tóku íbúar Borgarbyggðar sig saman og hrintu af stað verkefni sem bar heitið Samhugur í Borgarbyggð. Tilgangur þess er að veita aðstoð á þessum erfiðu tímum í kringum jólahátíðina. Verkefnið hefur verið endurvakið í ár og líkt og á síðasta ári er tekið á móti jólagjöfum, gjafabréfum og matarpökkum auk þess sem…Lesa meira