{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Ellefti gluggi jóladagatals Akurnesinga, Skaginn syngur inn jólin, var opnaður í morgun. Þar fór Ingi B fyrir Kór iðnaðarmanna þegar þeir fluttu lagið (Jóla)þorpið. Ingi B eða Ingi Björn Róbertsson, nú eða Iddi Biddi eins og flestir þekkja hann, er fjöllistamaður auk þess að vera blikksmiður. Hann er trommuleikari, dj og veislustjóri auk þess að stefna á að halda myndlistarsýningu og gefa út ljóðabók. Þá stefnir hann að því að eignast barn og notar hverja lausa stund til þess að æfa sig fyrir það.\r\n\r\nLagið segir Iddi Biddi að sé ástarsaga, ádeila á útgerðir en einnig fallegur áróður til lítils þorps sem allt eins gæti verið Akranes. Þá segir Iddi að lagið sé jafnframt sameiningartákn Vesturlands. Lagið og textinn eru eftir Idda Bidda.\r\n\r\n<a href=\"https://fb.watch/9Qut7d6gSN/\">Hlekkur á lagið.</a>",
"innerBlocks": []
}