
Magga og Stúfarnir. Ljósm. Skessuhorn/glh.
Magga og Stúfarnir
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Magný Guðmunda Þórarinsdóttir, eða Magga dagmamma á Akranesi eins og hún er betur þekkt, fer ár hvert í aðdraganda jóla með litlu Stúfana sína í göngutúr um Akranes. Hún hefur einatt vakið athygli þegar hún fer með börnin út að ganga í jólasveinabúningunum en búningana keypti hún fyrir rúmum tíu árum síðan. Seinna gáfu foreldrar barnanna í dagvistun hjá Möggu henni jólasveinabúning svo hún gæti tekið þátt í gleðinni með börnunum því þeim fannst alveg ómögulegt að hún væri skilin útundan. Þetta er því orðið að skemmtilegri jólahefð, bæði fyrir Möggu og börnin sem og íbúa Akraness að sjá Möggu á vappi með Stúfana sína og allir komast í jólaskapið. Meðfylgjandi myndir voru teknar nú laust fyrir hádegi í dag.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"large\" ids=\"49526,49527,49528,49529\"]",
"innerBlocks": []
}