
Á síðasta ári voru Vestlendingar ársins starfsfólk hjúkrunar- og dvalarheimila á Vesturlandi. Hér eru fulltrúar frá fimm af sjö dvalar- og hjúkrunarheimilum með blóm og viðurkenningarskjal. Ljósm. glh.
Tilnefningar óskast um Vestlending ársins 2021
{ "name": "core/freeform", "attributes": [], "saveContent": "Enn á ný mun Skessuhorn gangast fyrir vali á Vestlendingi ársins. Í lok hvers árs hefur verið kallað eftir tilnefningum frá almenningi um einstakling, eða hóp, sem verðskuldað gæti þetta sæmdarheiti fyrir framgöngu sína í starfi og/eða leik. Skilyrði er að sá sem tilnefndur er sé búsettur á Vesturlandi. Jafnframt er óskað eftir einni setningu þar sem tilnefning er rökstudd. Fyllsta trúnaðar er gætt varðandi þá sem eru tilnefndir. Ábendingum verður svo safnað saman og sérstök valnefnd á vegum ritstjórnar Skessuhorns metur þær. Valinu verður síðan lýst í fyrsta blaði nýs árs, miðvikudaginn 5. janúar 2022.\r\n\r\nTilnefningar um Vestlending ársins 2021 óskast sendar sem fyrst á: <a href=\"mailto:skessuhorn@skessuhorn.is\">skessuhorn@skessuhorn.is</a>", "innerBlocks": [] }