
Frá afhendingu peningagjafar Kiwanisklúbbsins Þyrils. F.v. Ingimar Hólm, Halldór Fr. Jónsson, María Ólafsdóttir og Sigríður Helga Einarsdóttir. Ljósm. mm
Mæðrastyrksnefnd berast gjafir í aðdraganda jólaúthlutunar
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Síðdegis í gær afhentu fulltrúar úr Kiwanisklúbbnum Þyrli á Akranesi Mæðrastyrksnefnd Akraness peningagjöf. Klúbburinn hefur í áravís verið árlegur stuðningsaðili Mæðrastyrksnefndar. Jafnvel þótt að félagsstarf Þyrils hafi verið með minnsta móti frá því kóvid faraldurinn hófst, og því litlu verið safnað í gjafasjóð, náðu klúbbfélagar að öngla saman 250 þúsund krónum sem þeir færðu Mæðrastyrksnefnd. Að sögn fulltrúa Mæðrastyrksnefndar verður þessum fjármunum, ásamt öðru styrkjum og gjöfum, ráðstafað í jólaúthlutun Mæðrastyrksnefndar sem fer fram fimmtudaginn 16. desember.\r\n\r\n<strong>Í mörg horn að líta</strong>\r\n\r\nSkessuhorn ræddi stuttlega við þær Maríu Ólafsdóttur og Sigríði Helgu Einarsdóttur sem eru í forsvari fyrir Mæðrastyrksnefnd Akraness. Þær segja að umsóknir skjólstæðinga þeirra séu 103 að þessu sinni, svipaður fjöldi og í fyrra þegar 106 fengu úthlutað í jólaúthlutun nefndarinnar. Þær segja fyrri hluta desember mesta annatímann hjá nefndinni. Þá þurfi m.a. að kalla inn umsóknir og fara yfir hvort að viðkomandi eigi rétt á styrk. Umsækjendur þurfa að framvísa búsetuvottorði og afriti úr staðgreiðsluskrá. Þegar svo liggur fyrir hversu margir eru styrkhæfir hefst vinna við pantanir á mat, kaup á inneignarkortum í matvöruverslanir og fleira. Þær María og Sigríður Helga segja að margir, einstaklingar sem fyrirtæki, hafi stutt nefndina að þessu sinni. Langstærsti styrkurinn komi hins vegar frá Kaupfélagi Skagfirðinga sem sendi þeim fjölbreytt úrval af mat. „Söfnunin hefur gengið mjög vel núna. Eiginlega er maður klökkur og hrærður yfir þeim samhug sem KS er að sýna. Þeir gefa út lista af mat sem við merkjum einfaldlega við á og þeir senda okkur matvælin þann dag sem hentar. Þetta gerði KS einnig í fyrra og við tókum eftir því að margir skjólstæðingar okkar urðu hissa á rausnarskapnum. Bæði peningagjafir sem Mæðrastyrksnefnd berast, aðrar matargjafir og ýmis liðveisla gerir okkur svo kleift að aðstoða þá sem þurfa,“ segja María Ólafsdóttir og Sigríður Helga Einarsdóttir. Meðal stórra styrkja sem nefndin hefur úr að spila má nefna eina milljón frá Norðuráli, styrk frá ríkisstjórninni og fjölmarga fleiri, meðal annars kiwanisklúbbnum.\r\n\r\n<em>Fyrir þá sem vilja styrkja Mæðrastyrksnefnd með fjárframlögum er bankareikningur nefndarinnar: 0552-14-402048 og kennitalan 411276-0829.</em>",
"innerBlocks": []
}