Ronja Ræningjadóttir sýnd í Tónlistarskóla Borgarfjarðar um helgina

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Nú um helgina sýnir Söngleikjadeild Tónlistarskóla Borgarfjarðar söngleik um Ronju Ræningjadóttur. Sagan er eins og flestir vita eftir Astrid Lindgren og tónlistin í sýningunni er meðal annars eftir þá Sebastian, Ostergren og Venge. Þýðing texta er eftir Þorleif Arnarsson og Sigríður Ásta Olgeirsdóttir setti leikgerðina saman fyrir söngleikjadeildina og leikstýrir jafnframt söngleiknum, en frá þessu segir á vef Borgarbyggðar.\r\n\r\nTheodóra Þorsteinsdóttir söngkennari er tónlistarstjóri og leikur Jónína Erna Arnardóttir á píanó í sýningunni. Nemendur söngleikjadeildar eru 16 í haust og á aldrinum 7-14 ára. „Það hefur verið mikið fjör á æfingum og börnin að standa sig sérlega vel. Það er greinilegt að sjá og heyra framfarir hjá nemendunum og áhuginn er mikill en þetta er fjórða árið sem skólinn hefur haft söngleikjasýningar reglulega“ segja þær mæðgur Sigríður Ásta og Theodóra.\r\n\r\nStefnt er að fjórum sýningum í Tónlistarskólanum, Borgarbraut 23 í Borgarnesi. Í dag, föstudag, klukkan 17 og 18.30 og á morgun, laugardag, klukkan 13 og 14.30. Hægt er að panta miða á sýninguna hjá skólastjóra í tölvupósti á <a href=\"mailto:tonlistarskoli@borgarbyggd.is\">tonlistarskoli@borgarbyggd.is</a>. Vegna sóttvarna þarf að takmarka fjölda gesta á hverri sýningu og þarf að skrá alla gesti, þá þarf kennitala og símanúmer að fylgja miðapöntuninni. Einnig er grímuskylda á viðburðinum.",
  "innerBlocks": []
}
Ronja Ræningjadóttir sýnd í Tónlistarskóla Borgarfjarðar um helgina - Skessuhorn