{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á síðasta ári tóku íbúar Borgarbyggðar sig saman og hrintu af stað verkefni sem bar heitið Samhugur í Borgarbyggð. Tilgangur þess er að veita aðstoð á þessum erfiðu tímum í kringum jólahátíðina. Verkefnið hefur verið endurvakið í ár og líkt og á síðasta ári er tekið á móti jólagjöfum, gjafabréfum og matarpökkum auk þess sem jólasveinar geta einnig fengið aðstoð við skógjafir.\r\n\r\nÞeir sem vilja leggja sitt af mörkum geta farið með gjafir og gjafakort á skrifstofu Kaupfélags Borgfirðinga. Einnig er tekið á móti gjafapappír og kortum. Einstaklingar þurfa ekki að pakka inn gjöfunum en æskilegt er að merkja viðeigandi aldur viðtakanda.\r\n\r\nNánari upplýsingar má finna á Facebooksíðu verkefnisins, Samhugur í Borgarbyggð. Þá er bent á að þeir einstaklingar sem vilja sækja um styrk geta sent póst á netfangið <a href=\"mailto:samhugur@samhugur.is\">samhugur@samhugur.is</a>",
"innerBlocks": []
}