Helgi Laxdal er fimleikamaður ársins 2021. Ljósm. FÍ

Helgi Laxdal kjörinn fimleikamaður ársins 2021

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Fyrir helgi greindi stjórn Fimleikasambands Íslands frá því að Helgi Laxdal Aðalgeirsson og Kolbrún Þöll Þorradóttir hafi verið útnefnd sem fimleikakarl og fimleikakona ársins 2021. Helgi Laxdal og Kolbrún Þöll æfa og keppa bæði með liði Stjörnunnar úr Garðabæ. Í öðru sæti karla megin í kjörinu var Valgarð Reinhardsson og Einar Ingi Eyþórsson í því þriðja. Hjá konunum var Ásta Kristinsdóttir í öðru sæti og Margrét Lea Kristinsdóttir í þriðja. Þá var lið ársins valið Kvennalandsliðið í hópfimleikum en þær urðu eins og kunnugt er Evrópumeistarar í hópfimleikum en mótið var haldið í Portúgal á þessu ári.\r\n\r\nHelgi Laxdal hóf sinn íþróttaferil á Akranesi þar sem hann er fæddur og uppalinn. Hann hefur verið í fremstu röð í hópfimleikum á alþjóðlegum vettvangi síðustu ár og náð feikilega góðum árangri. Í umsögn Fimleikasambandsins um Helga segir: „Helgi var í karlalandsliði Íslands á nýafstöðnu Evrópumóti í hópfimleikum þegar liðið tryggði sér 2. sæti en það er í fyrsta sinn sem karlaliðið kemst á pall. Hann keppti fyrstur í heiminum með framseríuna skrúfa-kraftstökk-tvöfalt strekkt heljarstökk með tveimur hálfri skrúfu á dýnu og braut þar blað í fimleikasögunni. Hann var valinn í úrvalslið mótsins, einn af sex fimleikamönnum á öllu mótinu sem fengu þann heiður, en Helgi var valinn fyrir stökkin sem hann framkvæmdi á dýnu. Helgi keppti einnig með yfirslag með tvöföldu heljarstökki og hálfri skrúfu og þrefalt heljarstökk með tveimur og hálfri skrúfu á trampólíni og er þar á pari við allra bestu fimleikamenn heims í erfiðleika. Helgi keppti ásamt liðinu sínu á Bikar og Íslandsmóti í vor og hampaði þar Íslands og Bikarmeistaratitlum. Hann hefur löngum vakið athygli fyrir mikla útgeislun á dansgólfinu þar sem hann nýtur sín vel og skilar dansinum virkilega vel frá sér. Helgi er einnig framúrskarandi góður stökkvari og keppir iðulega í öllum umferðum þegar að liðið hans keppir.“",
  "innerBlocks": []
}
Helgi Laxdal kjörinn fimleikamaður ársins 2021 - Skessuhorn