Fréttir

true

Starfshópi ætlað að skoða blóðtöku úr hryssum

Svandís Svavarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur ákveðið að skipa starfshóp til að fjalla um blóðtöku úr fylfullum hryssum til framleiðslu á efninu eCG, frjósemislyfja handa dýrum. Starfshópnum verður falið að skoða starfsemina, regluverkið í kring um hana og eftirlit, auk þess að skoða löggjöf og mögulega framkvæmd slíkrar starfsemi erlendis. Fulltrúi ráðuneytisins mun leiða vinnuna…Lesa meira

true

Tónar á ferð – ný söngbók eftir Valgerði Jónsdóttur

Út er komin bókin „Tónar á ferð“ – Söngbók eftir tónlistarkonuna Valgerði Jónsdóttur, Bæjarlistamann Akraness 2021. Í bókinni er að finna nótur að lögum sem Valgerður hefur samið á undanförnum árum og útsett fyrir barna- og ungmennakóra. Valgerður er einnig höfundur flestra af ljóðunum við lögin en einnig eru ljóð eftir Brynju Einarsdóttur, Guðmund Kristjánsson,…Lesa meira

true

Skallagrímskonur töpuðu gegn Fjölni

Skallagrímur og Fjölnir áttust við í Subway deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikurinn fór fram í Fjósinu í Borgarnesi og lauk leiknum með stórsigri Fjölnis, lokatölur 70:105. Það var rétt rúmlega fyrstu mínútuna í leiknum sem jafnt var með liðunum en síðan keyrði Fjölnir yfir heimakonur. Eftir fimm mínútna leik var munurinn þó aðeins…Lesa meira

true

Laxveiðin í sumar fimmtungi minni en í fyrra

Samkvæmt bráðabirgðatölum sem Hafrannsóknastofnun hefur birt fyrir stangveiði í landinu var heildarfjöldi veiddra laxa í sumar 36.300 fiskar. Það er 19,5% minnkun frá árinu 2020 og um 12,5% undir meðalveiði undanfarinna ára. Af einstökum landshlutum þá varð aukning í veiði í ám á Reykjanesi, Vesturlandi, Vestfjörðum og Norðurlandi vestra en minnkun varð í ám á…Lesa meira

true

Uppsagnir og breytingar gerðar á útibúaneti Olís

Á næsta ári munu eiga sér stað miklar breytingar á skipulagi útibúanets Olíuverslunar Íslands, Olís, en starfsmönnum var tilkynnt um þetta fyrir síðustu mánaðamót. Útibúin sem um ræðir eru á Akranesi, Ólafsvík, Bolungarvík, Grindavík, Reykjanesbæ, Selfossi, Vestmannaeyjum og Þorlákshöfn. Þá verða jafnframt gerðar breytingar á starfsemi verslunarinnar Rekstrarlands, sem rekin er í Reykjavík. Skessuhorn tók…Lesa meira

true

Selfoss hafði betur gegn Skallagrími

Skallagrímur og Selfoss mættust í 1. deild karla í körfuknattleik sunnan heiða á þriðjudagskvöldið og lauk leiknum með sigri Selfyssinga, 85:79. Jafnt var nánast á öllum tölum í byrjun leiks en undir lok fyrsta leikhluta skoruðu heimamenn níu stig í röð og leiddu 26:16. Í öðrum leikhluta bætti Selfoss enn meir við forskotið og munurinn…Lesa meira

true

Nú minnir svo ótal margt á jólin – í Skaginn syngur inn jólin

Hin sautján ára gamla Maja Daníelsdóttir Schnell er níundi gesturinn sem stígur á svið í Skaginn syngur inn jólin í Bíóhöllinni. Maja syngur djassaða útgáfu Michael Bublé af laginu It’s Beginning To Look A Lot Like Christmas. Gerir hún það listavel við undirleik hljómsveitar hússins undir stjórn Birgis Þórissonar. Ekkert því til fyrirstöðu að koma…Lesa meira

true

Sperrur nýrrar björgunarmiðstöðvar Brákar teknar að rísa

Í gær hófst vinna við reisingu á fyrstu sperrum nýrrar björgunarmiðstöðvar Brákar við Fitja í Borgarnesi. Ef veður helst skaplegt í þessari viku gæti reisingu burðarvirkis lokið fyrir eða um helgi. Nú er draumur björgunarsveitarfólks að náist að loka hluta af húsinu fyrir jól þannig að sala flugelda milli jóla og nýárs geti farið þar…Lesa meira

true

Jólablað Skessuhorns gefið út í næstu viku

Jólablað Skessuhorns kemur út í næstu viku, miðvikudaginn 15. desember. Það verður að venju stútfullt af efni. Blaðið er jafnframt síðasta blað ársins. Þeim sem vilja koma á framfæri efni eða auglýsingum til birtingar í Jólablaðinu er bent á að frestur til þess rennur út á morgun, föstudaginn 10. desember. Allar nánari upplýsingar eru gefnar…Lesa meira

true

Viljayfirlýsing um stofnun Líftæknismiðju á Breið

Í gær undirrituðu 13 fyrirtæki og stofnanir viljayfirlýsingu um stofnun Líftæknismiðju á Breið – nýsköpunarsetri á Akranesi. Þeir sem standa að stofnuninni eru í stafrófsröð: Akraborg ehf.,, Algó ehf., Breið þróunarfélag ses., Brim hf., Efnagreining ehf., Háskóli Íslands, Landbúnaðarháskóli Íslands, Lokinhamrar ehf., Norðanfiskur ehf., Norður ehf., Orkídea ses., Sedna biopack ehf. og Vignir G. Jónsson…Lesa meira