Fyrstu sperrurnar risnar. Myndin tekin síðdegis í gær. Ljósm. Jakob Guðmundsson.

Sperrur nýrrar björgunarmiðstöðvar Brákar teknar að rísa

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í gær hófst vinna við reisingu á fyrstu sperrum nýrrar björgunarmiðstöðvar Brákar við Fitja í Borgarnesi. Ef veður helst skaplegt í þessari viku gæti reisingu burðarvirkis lokið fyrir eða um helgi. Nú er draumur björgunarsveitarfólks að náist að loka hluta af húsinu fyrir jól þannig að sala flugelda milli jóla og nýárs geti farið þar fram. „En við erum samt búin að tryggja okkur húsnæði annars staðar ef það tekst ekki,“ segir Einar G Pálsson stjórnarmaður í Brák í samtali við Skessuhorn.\r\n\r\nNýja húsið verður um 760 fermetrar að stærð, en þar verður m.a. fundarsalur, búningaaðstaða, búnaðargeymsla og tækjasalur. Auk þess verður þar skrifstofa sem hægt verður að nota sem aðstöðu fyrir aðgerðastjórn í stærri björgunaraðgerðum. Húsið er reist með límtréssperrum og klætt yleiningum frá Límtré Vírneti. Áætlanir björgunarsveitarmanna eru að byggingu hússins og frágangi ljúki síðar í vetur. Einar segir að búið sé að tryggja lánsfjármögnun vegna byggingarinnar en stærsti óvissuþáttur í verkefninu er vissulega sala á gömlu björgunarmiðstöðinni í Brákarey. Hún er nú auglýst til sölu fyrir 66 milljónir.\r\n\r\nMinnt er á söfnunarreikning Brákar fyrir húsbygginguna. Hann er: 0326-22-2220, kt. 570177-0369.",
  "innerBlocks": []
}
Sperrur nýrrar björgunarmiðstöðvar Brákar teknar að rísa - Skessuhorn