Útibú Olís við Suðurgötu 10 á Akranesi. Ljósm. vaks.

Uppsagnir og breytingar gerðar á útibúaneti Olís

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Á næsta ári munu eiga sér stað miklar breytingar á skipulagi útibúanets Olíuverslunar Íslands, Olís, en starfsmönnum var tilkynnt um þetta fyrir síðustu mánaðamót. Útibúin sem um ræðir eru á Akranesi, Ólafsvík, Bolungarvík, Grindavík, Reykjanesbæ, Selfossi, Vestmannaeyjum og Þorlákshöfn. Þá verða jafnframt gerðar breytingar á starfsemi verslunarinnar Rekstrarlands, sem rekin er í Reykjavík.\r\n\r\nSkessuhorn tók púlsinn á Frosta Ólafssyni, sem er framkvæmdastjóri Olís, og spurði hann út í þessar breytingar og í hverju þær fælust? Frosti segir að meginbreytingin felist í því að umbreyta verslunum í afgreiðslulagera og söluskrifstofur. Þannig verði útibúin rekin á aðeins öðru formi en hefur verið gert hingað til: „Þessi breyting á við um allt land, við höfum rekið nokkur af okkar útibúum með þessum hætti hingað til, til dæmis á Akureyri, Húsavík og Reyðarfirði og það hefur gefið góða raun. Þetta er í raun liður í stærri skipulagsbreytingu sem er að eiga sér stað á stórnotendasölu innan samstæðunnar Haga. Þannig er stefnt að því að setja upp nýja einingu innan Haga, en hún hefur starfsemi næsta vor þannig að þetta er ekki að gerast alveg strax. Þessi nýja eining kemur til með að taka yfir ákveðna vöruflokka sem hafa verið á forræði Olís hingað til, þ.e. hreinlætis, rekstrar- og heilbrigðisvörur. Við erum í raun að hefja undirbúning fyrir þessa breytingu með þessum aðgerðum sem þú nefnir og þær koma til með að eiga sér stað í skrefum. Fyrsta skrefið er umbreyting á verslunum í afgreiðslulagera og söluskrifstofur, en sú aðgerð kemur til með að eiga sér stað í byrjun febrúar. Við munum síðan nota næstu mánuði á eftir til að undirbúa flutning á umræddum vöruflokkum og það er gert ráð fyrir að þessi nýja eining hefji starfsemi í vor. Við munum nýta tímann sem að við höfum fram að vori til þess að vinna með okkar viðskiptavinum að því að þessi breyting geti gengið sem allra best fyrir sig. Horft til lengri tíma þá sjáum við tækifæri til þess að efla okkur á báðum vígstöðvum með skýrari fókus og þjónustuskipulagi sem stenst tímans tönn. Þannig sjáum fram á að þessi breyting geri okkur kleift að viðhalda þessu sterka þjónustuneti sem við höfum haft úti á landi til lengri tíma. Með það í huga þá horfum við á þetta sem skipulagsbreytingu sem stendur vörð um þá stefnu Olís að veita þjónustu um allt land og styðja við okkar viðskiptavini.“\r\n\r\n<strong>Ákveðin sóknarfæri</strong>\r\n\r\nFrosti segir einnig að það verði vafalítið einhver blæbrigðamunur á milli útibúa í tengslum við megináherslur í vöruúrvali, en reynt sé að samræma þetta að því marki sem unnt er. „Markmiðið er í raun að samræma þetta skipulag um allt land, þ.e. að við séum með afgreiðslulagera og söluskrifstofur til að þjónusta viðskiptavini okkar. Við sjáum ákveðin sóknarfæri fólgin í því að auka sveigjanleika okkar starfsfólks til þess að sækja viðskiptavininn meira heim og veita þjónustuna á þann veginn. Við komum til með að endurskoða vöruúrvalið að einhverju marki og sú vinna er í gangi. Að sama skapi verður lögð aukin áhersla á vefsölu, en við erum að fjárfesta umtalsvert í þeirri breytingu. Auðvitað er markmiðið hjá okkur að þetta þjónustuskipulag standist tímans tönn sem allra lengst og með þessari breytingu þá erum við að mæta þeim framtíðaráskorunum sem eru í farvatninu hvað varðar orkuskiptin og minnkandi umfang eldsneytissölu á næstu áratugum. Hugmyndin er að sníða þetta skipulag þannig að við höfum styrkleika og sveigjanleika til að mæta breyttum tímum og þannig að við getum viðhaldið þessari mikilvægu nærþjónustu. Verslunarreksturinn sem slíkur dregur talsvert úr sveigjanleika þjónustuskipulagsins, en við ætlum að útfæra þetta eftir þörfum hvers svæðis fyrir sig. Við vonum því að þessi breyting, horft til lengri tíma, viðhaldi þjónustu gagnvart viðskiptavinum í því formi sem hentar best á hverju svæði.“\r\n\r\nFrosti segir að þessum breytingum fylgi óumflýjanlega einhverjar uppsagnir. Breytingarnar verða misjafnar eftir einingum en hluti af starfsfólkinu færist yfir í þessa nýju einingu innan Haga þegar tilfærslan eigi sér stað. En eru þetta ekki kaldar kveðjur til starfsmanna í miðjum faraldri sem hafa margir mjög langan starfsferil að baki og mikla tryggð við fyrirtækið? „Það er aldrei auðvelt að fara í breytingar sem fela í sér uppsagnir. Olís kann ótvírætt að meta tryggð og frammistöðu starfsfólks sem að starfar hjá okkur þannig að það er ekki léttbært af okkar hálfu að missa gott starfsfólk í tengslum við þessar breytingu. En við vonum auðvitað að þetta sé til þess fallið að efla félagið til lengri tíma á þeirri vegferð að halda uppi sterki og góðri þjónustu við nærsvæðin úti á landi.“ segir Frosti að lokum.",
  "innerBlocks": []
}
Uppsagnir og breytingar gerðar á útibúaneti Olís - Skessuhorn