Fulltrúar þeirra 13 samstarfsaðila sem standa að stofnun Líftæknismiðju á Breið. F.v: Guðmundur Páll Jónsson frá Lokinhömrum, Sigríður Kristinsdóttir frá Sedna biopack, Bergur Benediktsson og Þórður Bergsson frá Norður, Valdís Fjölnisdóttir framkvæmdastjóri Breiðar þróunarfélags, Jón Helgason frá Vigni G Jónssyni, Kristján Þ. Davíðsson frá Brimi, Sæunn Stefánsdóttir frá HÍ, Ragnheiður Þórarinsdóttir rektor LbhÍ, Sveinn Aðalsteinsson frá Orkídea, Ragnar Þ. Gunnarsson frá Akraborg, Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri á Akranesi, Elísabet Axelsdóttir frá Efnagreiningu og Einar Guðmundsson frá Norðanfiski. Á myndina vantar Gunnar Ólafsson frá Algó. Ljósm. aðsend.

Viljayfirlýsing um stofnun Líftæknismiðju á Breið

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í gær undirrituðu 13 fyrirtæki og stofnanir viljayfirlýsingu um stofnun Líftæknismiðju á Breið - nýsköpunarsetri á Akranesi. Þeir sem standa að stofnuninni eru í stafrófsröð: Akraborg ehf.,, Algó ehf., Breið þróunarfélag ses., Brim hf., Efnagreining ehf., Háskóli Íslands, Landbúnaðarháskóli Íslands, Lokinhamrar ehf., Norðanfiskur ehf., Norður ehf., Orkídea ses., Sedna biopack ehf. og Vignir G. Jónsson hf. Lýsa þessir aðilar yfir vilja sínum til að eiga samstarf um og að styðja við að í Breið nýsköpunarsetri verði stofnuð líftæknismiðja. Markmiðið með uppbyggingu líftæknismiðju er að skapa samvinnurými þar sem frumkvöðlar, stofnanir og fyrirtæki, sem stunda rannsóknir úr lífmassa, geti haft aðstöðu til rannsókna og þróunar á uppskölunaraðferðum.\r\n\r\n„Mikilvægt er að geta tekið grunnrannsóknir yfir á hagnýtingarstig. Svo slíkt sé hægt þarf oft að prófa aðferðir með dýrum og plássfrekum tækjum sem þurfa sérhæfða aðstöðu. Þetta er mörgum, sem stunda grunnrannsóknir, ofviða þar sem þeir hafa hvorki aðstöðu né fjármagn til að halda rannsóknum áfram. Með tilkomu líftæknismiðju geta allir, sem þess óska, fengið aðgang að samvinnurýminu til lengri eða styttri tíma til þess að þróa hugmyndir sína áfram við góðar aðstæður og með nauðsynlegum tækjabúnaði,“ segir í tilkynningu.\r\n\r\nMarkmiðið er að stofnuð verði kvik og aðlaðandi aðstaða fyrir frumkvöðla á sviði líftækni. „Byggð verður upp líftæknismiðja, aðstaða sem býður upp á lifandi starfsemi í rými sem er sérútbúið fyrir það rannsóknar- og þróunarstarf sem færi fram á sviði lífmassa. Aðgengi að grunntækjum verður til staðar og aðstaða fyrir sérhæfð tæki verður til staðar á ákveðnum tímum. „Stutt verður við rannsóknir á lífmassa og tengdum verkefnum með sköpun nýrrar þekkingar og hagnýtingar hennar sem er lykill að lífsgæðum og auðugu mannlífi til framtíðar. Áhersla á rannsóknir á hafinu og nýsköpun hefur aldrei verið mikilvægari. Miklar umhverfisbreytingar eiga sér stað í heiminum í dag og er áríðandi að efla grunnrannsóknir til að ná þeim yfir á hagnýtingarstig. Líftæknissmiðjan á Breið mun auka möguleika frumkvöðla í þeirri vegferð,“ segir í tilkynningu frá stofnaðilum.",
  "innerBlocks": []
}
Viljayfirlýsing um stofnun Líftæknismiðju á Breið - Skessuhorn