
Valgerður Jónsdóttir. Ljósm. Sigtryggur Ari Jóhannsson.
Tónar á ferð – ný söngbók eftir Valgerði Jónsdóttur
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Út er komin bókin „Tónar á ferð“ – Söngbók eftir tónlistarkonuna Valgerði Jónsdóttur, Bæjarlistamann Akraness 2021. Í bókinni er að finna nótur að lögum sem Valgerður hefur samið á undanförnum árum og útsett fyrir barna- og ungmennakóra. Valgerður er einnig höfundur flestra af ljóðunum við lögin en einnig eru ljóð eftir Brynju Einarsdóttur, Guðmund Kristjánsson, Hannes Hafstein og fleiri í bókinni. Valgerður starfar sem kórstjóri Karlakórsins Svana og Skólakórs Grundaskóla á Akranesi. Hún hefur nýtt mörg laganna í kennslu og kórastarfi í gegnum árin. Í bókinni eru einnig níu lög sem henta vel í tónlistarvinnu með leikskólabörnum og yngstu nemendum grunnskóla, með hugmyndum að leikjum og hljóðfæraleik.\r\n\r\nUpptökur að mörgum laganna er að finna á tónlistarsíðum Valgerðar á Spotify, YouTube og facebook síðunni Music a la Vala. Hægt er að panta bókina hjá Valgerði gegnum netfangið valgerdur76@gmail.com. Einnig verður hún fáanleg í nokkrum af verslunum Pennans Eymundsson m.a. á Akranesi og Tónastöðinni í Reykjavík.\r\n\r\n<strong><em>Í dag, föstudaginn 10. desember milli klukkan 17 og 17.30, ætla Valgerður og Sylvía dóttir hennar að flytja lög úr bókinni í verslun Pennans/Eymundsson á Akranesi. Allir eru hjartanlega velkomnir að kíkja við.</em></strong>\r\n\r\n<em>-fréttatilkynning</em>",
"innerBlocks": []
}