Svandís Svavarsdóttir ráðherra.

Starfshópi ætlað að skoða blóðtöku úr hryssum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Svandís Svavarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur ákveðið að skipa starfshóp til að fjalla um blóðtöku úr fylfullum hryssum til framleiðslu á efninu eCG, frjósemislyfja handa dýrum. Starfshópnum verður falið að skoða starfsemina, regluverkið í kring um hana og eftirlit, auk þess að skoða löggjöf og mögulega framkvæmd slíkrar starfsemi erlendis. Fulltrúi ráðuneytisins mun leiða vinnuna en ráðherra mun óska eftir tilnefningum í starfshópinn frá Matvælastofnun og frá Siðfræðistofnun Háskóla Íslands. Fundað verður með hagaðilum auk þess sem almenningi mun gefast kostur á að tjá sig um störf og tillögur hópsins á Samráðsgátt stjórnvalda þegar þær liggja fyrir. Starfshópurinn mun hefja störf á næstu dögum. Verkefni starfshópsins er aðskilið rannsókn Matvælastofnunar, en stofnunin rannsakar nú meint alvarleg brot á velferð blóðtökuhryssna. Því má við þetta bæta að Inga Sæland formaður Flokks fólksins hefur í félagi við aðra þingmenn mælt fyrir frumvarpi á Alþingi sem kemur í veg fyrir blóðmerahald hér á landi.",
  "innerBlocks": []
}
Starfshópi ætlað að skoða blóðtöku úr hryssum - Skessuhorn