Hilmir Dan Ævarsson með 82 sentimetra lax úr Þegjanda í Laxá í Dölum. Ljósm. gb.

Laxveiðin í sumar fimmtungi minni en í fyrra

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Samkvæmt bráðabirgðatölum sem Hafrannsóknastofnun hefur birt fyrir stangveiði í landinu var heildarfjöldi veiddra laxa í sumar 36.300 fiskar. Það er 19,5% minnkun frá árinu 2020 og um 12,5% undir meðalveiði undanfarinna ára. Af einstökum landshlutum þá varð aukning í veiði í ám á Reykjanesi, Vesturlandi, Vestfjörðum og Norðurlandi vestra en minnkun varð í ám á Norðurlandi eystra, Austfjörðum og Suðurlandi. Síðustu sex ár hefur veiði villtra laxa verið undir langtímameðaltali (1974-2021) með lágmarki árið 2019 þegar aðeins veiddust 29.218 laxar.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_49503\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-49503 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2021/12/Laxveidin-i-sumar-fimmtungi-minni-en-i-fyrra_2-600x371.png\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"371\" /> Stangveiði í íslenskum ám frá 1974 - 2021. Veiðinni er skipt í landaðan afla (blátt), veitt og sleppt (grænt) og veiði úr sleppingum gönguseiða (rautt). Tölur frá 2021 eru bráðabirgðatölur. Graf: Hafró.[/caption]",
  "innerBlocks": []
}
Laxveiðin í sumar fimmtungi minni en í fyrra - Skessuhorn