Fréttir

true

Góður árangur lyftingafólks frá Kraftlyftingafélagi Akraness

Bikarmót í klassískum kraftlyftingum fór fram laugardaginn 20. nóvember og átti Kraftlyftingafélag Akraness þar þrjá keppendur. Í kvennaflokki keppti Sylvía Ósk Rodriguez í -84 kg flokki kvenna. Hennar þyngstu lyftur voru 145 kg í hnébeygju, 82,5 kg í bekkpressu, 160 kg í réttstöðulyftu og samanlagður árangur 387,5 kg sem gefa 73,78 stig. Hún náði fram…Lesa meira

true

Matvælastofnun rannsakar blóðtöku úr fylfullum hryssum

Matvælastofnun hefur nú til rannsóknar myndband frá dýraverndarsamtökunum Animal Welfare Foundation/ Tierschutzbund Zürich sem sýnir myndbrot frá blóðtöku úr fylfullum hryssum. Verklag sem þar kemur fram virðist stríða gegn starfsskilyrðum starfseminnar sem eiga að tryggja velferð hryssnanna. „Matvælastofnun lítur málið alvarlegum augum,“ segir í tilkynningu. Eftirlit með blóðtöku úr fylfullum hryssum er áhættumiðað og í…Lesa meira

true

Skallagrímskonur töpuðu stórt fyrir Keflavík

Skallagrímur fékk lið Keflavíkur í heimsókn í Borgarnes í gærkvöldi í Subway deild kvenna í körfuknattleik og varð að sætta sig við sitt áttunda tap í röð í deildinni. Jafnræði var með liðunum í fyrsta leikhluta og munurinn fimm stig við flautið, 19:24. Keflavík náði að auka muninn aðeins meira í öðrum leikhluta og staðan…Lesa meira

true

Snæfell tapaði naumlega gegn Ármanni

Snæfell tók á móti Ármanni á laugardaginn í fyrstu deild kvenna í körfuknattleik og varð að lokum að sætta sig við þriggja stiga tap, 76:79. Snæfellskonur voru sterkari í fyrsta leikhluta og staðan 20:14 þeim í vil. Leikurinn þróaðist á svipaðan hátt í öðrum leikhluta, Snæfell var ávallt yfir og náði mest ellefu stiga forskoti…Lesa meira

true

Smitum að fjölga í Grundarfirði og brugðist við því

Í Grundarfirði er nú viðkvæm staða vegna fjölgunar Covid-19 smita undanfarna daga. Búist er við að staðfestum smitum muni fjölga. Allt skólahald er í dag með breyttu sniði og fjölmargir í sóttkví. Nú eru ellefu manns í einangrun og þar af tvö börn á grunnskólaaldri. 63 eru í sóttkví. Þetta kemur fram í tilkynningu frá…Lesa meira

true

Hyggilegt að hreinsa niðurföll og ræsi

Veðurstofan spáir suðvestlægri átt næsta sólarhringinn, 13 til 18 m/s, sumsstaðar mun hvassara á Norðurlandi og í Öræfum. Talsverð rigning á vesturhelmingi landsins, en úrkomulítið fyrir austan. Hiti 4 til 9 stig. Mun hægara og skúrir eða él V-til um kvöldið og kólnar. Í athugasemdum veðurfræðings segir að á morgun sé gert ráð fyrir suðvestan…Lesa meira

true

Skallagrímur lagði Sindra

Skallagrímsmenn lögðu í langferð austur á bóginn á föstudaginn þegar þeir léku gegn liði Sindra á Höfn í Hornafirði í 1. deild karla í körfuknattleik. Sindri var með tólf stig fyrir viðureignina og Skallagrímur sex þannig að þetta var mikilvægur leikur fyrir Skallagrím að koma sér í efri hluta deildarinnar. Mikil barátta var í byrjun…Lesa meira

true

Fyrsta hraðhleðslustöðin komin í upp í Stykkishólmi

Stykkishólmsbær gerði nýverið samning við Ísorku um að reisa fyrstu hraðhleðslustöðina í bænum og er hún nú komin upp á planinu við íþróttamiðstöðina. Stöðin er 150kw og er þannig gerð að hægt er að leggja beggja vegna við hana og hlaða tvo bíla í einu. Þá hefur verið gert ráð fyrir tveimur stöðvum til viðbótar…Lesa meira

true

Rörasteypu hætt á næsta ári í Borgarnesi

Steypustöðin í Borgarnesi hefur með bréfi til viðskiptavina sinna tilkynnt að á næsta ári verði hætt framleiðslu og sölu á steinrörum og brunnum hjá fyrirtækinu. Í bréfinu, sem Lárus Elíasson framkvæmdastjóri Steypustöðvarinnar í Borgarnesi ritar, segir að sökum breyttra markaðsaðstæðna hafi fyrirtækið ákveðið að hætta framleiðslu steinröra og brunna á árinu 2022. Markaður fyrir þessa…Lesa meira

true

Lionsmenn leigja út ljósakrossa á Akranesi

Að venju verður Lionsklúbbur Akraness með útleigu á ljósakrossum í kirkjugarðinum í Görðum á Akranesi nú í byrjun aðventunnar. Afgreiðslutímar að þessu sinni verða laugardaginn 27. nóvember frá klukkan 11.00. til 15.30, sunnudaginn 28. nóvember frá kl. 13.00. – 15.30. og laugardaginn 4. desember frá kl. 13.00. – 15.30. Lionsklúbbur Akraness hefur frá árinu 1958…Lesa meira