Frá því klukkan 8 í morgun hefur verið stöðugur straumur fólks í skimun með PCR sýnatöku og í hraðpróf, á heilsugæslustöð HVE í Grundarfirði. Tveir hjúkrunarfræðingar komu í morgun til aðstoðar frá Stykkishólmi. Mikið álag er á öllu starfsfólki vegna ástandsins. Nú rétt í þessu var verið að mæta með fleiri sýnatökupinna, galla og annan búnað frá Akranesi. Sjúkraflutningamaður þaðan fer nú með sýni frá Grundarfirði til rannsóknar í Reykjavík. Ljósm. tfk.
Smitum að fjölga í Grundarfirði og brugðist við því

"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í Grundarfirði er nú viðkvæm staða vegna fjölgunar Covid-19 smita undanfarna daga. Búist er við að staðfestum smitum muni fjölga. Allt skólahald er í dag með breyttu sniði og fjölmargir í sóttkví. Nú eru ellefu manns í einangrun og þar af tvö börn á grunnskólaaldri. 63 eru í sóttkví. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Björgu Ágústsdóttur sveitarstjóra í morgun. Samkvæmt tilkynningu hennar hefur verið brugðist við með eftirfarandi ráðstöfunum:\r\n\r\nLeikskóli: \r\n
\r\n \t
Leikskólinn verður lokaður mánudag til miðvikudags.
\r\n \t
Flest börnin eru komin í sóttkví, en nokkur börn á drekadeild eru a.m.k. enn um sinn í smitgát.
\r\n \t
Meirihluti starfsfólks er í sóttkví, einn í einangrun.
\r\n
\r\nGrunnskóli, heilsdagsskóli og Eldhamrar: \r\n
\r\n \t
Skólinn verður lokaður mánudag 22. nóvember. Nemendur fá skilaboð og mögulega verkefni frá kennurum.
\r\n \t
Heilsdagsskóli og leikskóladeildin Eldhamrar verða sömuleiðis lokuð.
\r\n \t
Eitt smit er staðfest hjá nemanda í 2. bekk. Allir nemendur bekkjarins fóru í sóttkví. Smit er einnig staðfest hjá nemanda í 5. bekk. Smitrakning er í undirbúningi.
\r\n \t
Grunur er um frekari smit, skv. upplýsingum HVE.
\r\n \t
Börn (sem voru á fimmtudag og föstudag) í heilsdagsskóla fóru í smitgát.
\r\n \t
Nokkrir kennarar og starfsmenn eru komnir í smitgát, en enginn kennari í sóttkví enn.
\r\n \t
Foreldrar fengu skilaboð og símtöl í dag. Frekari upplýsingar koma síðar.
\r\n \t
Staðan verður tekin á mánudag með framhaldið.
\r\n
\r\nTónlistarskóli:\r\n
\r\n \t
Kennsla fellur niður mánudag 22. nóv. hjá öllum.
\r\n \t
Vitað er að kennsla mun raskast nokkuð í vikunni, en staðan skýrist á mánudag og frekari skilaboð verða send nemendum og forráðamönnum.
\r\n
\r\nÆfingar UMFG:\r\n
\r\n \t
Allar æfingar hjá UMFG falla niður út þessa viku, skv. tilkynningu félagsins.
\r\n
\r\nÍþróttahús og heitir pottar:\r\n
\r\n \t
Íþróttahúsið og heitir pottar verða lokuð mánudag.
\r\n \t
Frekari ákvarðanir teknar mánudag 22. nóv.
\r\n
\r\nFélagsmiðstöðin Eden\r\n
\r\n \t
Það er ekki starfsemi á mánudögum.
\r\n \t
Ákvörðun og skilaboð koma síðar.
\r\n
\r\nSögumiðstöðin, bókasafn og félagsstarf á vegum félagasamtaka í húsinu:\r\n
\r\n \t
Molakaffi á miðvikudögum fellur niður þessa vikuna.
\r\n \t
Grundarfjarðarbær mælist til þess að félagasamtök taki stöðuna á mánudag og ákveði í framhaldinu hvernig þau hagi starfinu í vikunni.
\r\n
\r\nBókasafn; skilaboð á mánudag.\r\n
\r\n \t
Sjöa vikunnar, úr myndasafni Bærings, verður á sínum stað á bæjarvefnum.
\r\n
\r\nFjölbrautaskóli Snæfellinga:\r\n
\r\n \t
FSN mun fjarkenna, skv. frétt, á mánudag og þriðjudag og taka þá stöðuna.
\r\n
\r\nÞrif og sótthreinsun\r\n
\r\n \t
Á mánudag kemur fyrirtæki sem sérhæfir sig í þrifum og sótthreinsar grunnskóla, íþróttahús og tónlistarskóla. Síðan verður farið í leikskólann.
\r\n
\r\nEf einkenni - förum í skimun\r\n
\r\n \t
Samkvæmt upplýsingum HVE er búist við mörgum í skimun mánudag.
\r\n \t
Skilaboð sóttvarna hjá HVE eru þessi: Ef við finnum fyrir einkennum, þá eigum við umsvifalaust að panta okkur tíma í skimun. Þetta gildir jafnvel þó við séum bólusett.
\r\n \t
Bóka má tíma með því að hringja á heilsugæslustöðina í síma 432-1350 eða fara inná „mínar síður“ á heilsuvera.is
\r\n
\r\n ",
"innerBlocks": []