Fréttir

true

Áforma að reisa tvo vindmyllugarða á Vesturlandi

Franska fyrirtækið Qair Iceland ehf. áformar að reisa tvo vindmyllugarða á Vesturlandi en fyrirtækið er dótturfyrirtæki franska fyrirtækisins Qair Group. Qair hét áður Quadran Iceland Development ehf. og var stofnað 2018 samkvæmt upplýsingum frá Ríkisskattstjóra. Fyrirtækið Qair Group er óháður framleiðandi endurnýjanlegrar orku víða um heim. Sá garður sem lengra er kominn er áformaður í…Lesa meira

true

Minntust látinna í umferðinni

Í dag er alþjóðlegur minningardagur þeirra sem látist hafa í umferðarslysum. Þess er víða minnst hér á landi með minningarstundum. Í ár er kastljósinu meðal annars beint að afleiðingum þess ef öryggisbelti eru ekki notuð. Frá því að fyrsta banaslysið var skráð hér á landi 25. ágúst 1915 hafa 1592 látist í umferðinni á Íslandi.…Lesa meira

true

Ný smit hafa áhrif á skólastarf í Grundarfirði

Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri í Grundarfirði skrifaði í gær tilkynningu á FB síðu bæjarins um að nú hafi verið staðfest fjögur ný Covid-smit í bæjarfélaginu. „Áhrifin ná inn á leikskólann okkar, þar sem starfsmaður hefur greinst smitaður. Nú tekur við sambærilegt ferli og í síðustu viku. Þau börn sem voru í leikskólanum á fimmtudag og/eða föstudag…Lesa meira

true

Annir hjá björgunarsveitum

Þó nokkuð hefur verið um útköll hjá björgunarsveitum landsins um helgina. Í morgun voru björgunarsveitir á Vesturlandi kallaðar út til leitar að manni sem var villtur. Tveimur tímum síðar voru björgunarsveitir kallaðar heim, eftir að maðurinn hafði fundist heill á húfi. Í þremur tilfellum voru sveitirnar kallaðar út í gær vegna fólks sem slasast hafði…Lesa meira

true

Tvær Evur árituðu bækur sínar

Nýjar bækur eru nú að hellast inn á jólamarkaðinn eins og glöggt má sjá í bókaverslunum. Síðdegis í gær voru tveir höfundar staddir í Pennanum á Akranesi og árituðu fyrir gesti bækur sínar. Þetta voru þær Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir, sem skrifaði bókina Bakað með Evu, og síðan Eva Björg Ægisdóttir sem sendir frá sér…Lesa meira

true

Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa á sunnudaginn

Árlegur alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa verður haldinn hér á landi sunnudaginn. Í ár verður kastljósinu meðal annars beint að afleiðingum þess ef öryggisbelti eru ekki notuð. Táknrænar minningarstundir verða haldnar hringinn í kringum landið af þessu tilefni. Dagskrá viðburða er á vefnum minningardagur.is. Minningarathöfn verður haldin við Björgunarmiðstöðina í Skógarhlíð í Reykjavík kl. 14:00.…Lesa meira

true

Hrútaskráin komin út

Hrútaskrá sauðfjársæðingastöðvanna er jafnan eitt mest lesna rit ársins víða um land. Skráin er nú komin út á rafrænu formi en prentaða útgáfan er væntanleg í næstu viku. „Að þessu sinni standa 48 úrvalshrútar til boða í komandi sæðingavertíð en útsending sæðis mun hefjast þann 1. desember nk. og standa til 21. desember nk. Af…Lesa meira

true

Rakaskemmdir hafa greinst í Heiðarskóla

Skýrsla sem Hvalfjarðarsveit fékk Verkís til að vinna um ástand húsnæðis Heiðarskóla var kynnt fyrir starfsfólki skólans, foreldrum/forráðamönnum barna í skólanum og fulltrúum sveitarstjórnar í gærkvöldi. Þar kemur fram að rakaskemmdir hafa fundist á nokkrum svæðum í skólahúsinu. Við skoðun kom m.a. í ljós að víða var frágangur á gólfdúk ófullnægjandi og raki fannst undir…Lesa meira

true

Jólatrén risin á Akranesi

Þess sjást víða merki að jólin eru í nánd. Fólk er farið að skreyta húsin sín með ljósum og lýsa þannig upp skammdegið. Jólatré eru einnig farin að sjást víða. Sigurður Ólafsson, starfsmaður Akraneskaupstaðar, og Ólafur Elí Líndal Hjartarson, starfsmaður Gísla Jónssonar ehf., hafa varið þessum föstudegi við að reisa jólatré bæjarins. Blaðamaður Skessuhorn rakst…Lesa meira

true

FKA óskar eftir tilnefningum um konur í atvinnulífinu

Félag kvenna í atvinnulífinu, FKA, óskar nú eftir tilnefningum fyrir viðurkenningarhátíð sem haldin verður í janúar næstkomandi þar sem konur úr atvinnulífinu verða heiðraðar. „Við viljum fá nöfn kvenna af landinu öllu, en hægt er að senda inn tilnefningar til og með 25. nóvember nk,“ segir í tilkynningu. „FKA kallar eftir tilnefningum frá almenningi og…Lesa meira