Frá björgun tólf ára stúlku ofan úr Hestfjalli í gær. Ljósm. Landsbjörg.

Annir hjá björgunarsveitum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Þó nokkuð hefur verið um útköll hjá björgunarsveitum landsins um helgina. Í morgun voru björgunarsveitir á Vesturlandi kallaðar út til leitar að manni sem var villtur. Tveimur tímum síðar voru björgunarsveitir kallaðar heim, eftir að maðurinn hafði fundist heill á húfi. Í þremur tilfellum voru sveitirnar kallaðar út í gær vegna fólks sem slasast hafði á fæti og flytja þurfti í sjúkrabíla. Björgunarsveitarfólk aðstoðaði ellefu ára dreng við gosstöðvarnar á Reykjanesi sem talinn var hafa farið úr hnjálið. Sjúkraflutningamenn fóru ásamt björgunarsveitafólki á björgunarsveitabíl á slysstað og var hlúð að honum áður en hann var fluttur í bílnum að sjúkrabíl. Hálftíma síðar barst Neyðarlínu tilkynning um 12 ára stúlku sem einnig hafði slasast á fæti á Hestfjalli í Borgarfirði. Stúlkan hafði hrasað og hlotið áverka á fæti, búið var um hana í sjúkrabörum og hún flutt að sjúkrabíl.\r\n\r\nÁ Suðurlandi þurfti vettvangsliðahópur á Flúðum, sem sinnir fyrsta viðbragði í uppsveitum Árnessýslu, að koma manni til aðstoðar við Geysi í Haukadal. Maðurinn hafði hrasað í hálku og fótbrotnað. Hann var fluttur til móts við sjúkrabíl sem flutti hann á sjúkrahús í Reykjavík.",
  "innerBlocks": []
}
Annir hjá björgunarsveitum - Skessuhorn