{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í dag er alþjóðlegur minningardagur þeirra sem látist hafa í umferðarslysum. Þess er víða minnst hér á landi með minningarstundum. Í ár er kastljósinu meðal annars beint að afleiðingum þess ef öryggisbelti eru ekki notuð. Frá því að fyrsta banaslysið var skráð hér á landi 25. ágúst 1915 hafa 1592 látist í umferðinni á Íslandi. Enn fleiri slasast alvarlega, takast á við áföll, sorgir og eftirsjá af þessum völdum.\r\n\r\nÞað sem af er þessu ári hafa sjö einstaklingar látið lífið í umferðinni hér á landi. Allt árið 2020 létust sjö einstaklingar í umferðinni en árið 2019 sex manns. Alls liðu 258 dagar án nokkurs banaslyss á árinu og er það lengsti tími frá því að skráningar hófust 1966. Að meðaltali hafa undanfarin tíu ár tólf manns látist í umferðinni á hverju ári. Tíu ár þar á undan þ.e. frá 2001 til og með 2010 létust að meðaltali 20 manns á ári í umferðinni hér á landi. Því má segja að allt samfélagið deili með sér alvarlegum afleiðingum umferðarslysa. Vart er til sá einstaklingur sem þekkir ekki einhvern sem lent hefur í alvarlegu slysi í umferðinni.\r\n\r\nÁ Akranesi komu fulltrúar viðbragðsaðila saman við björgunarstöðina Kalmansbraut klukkan 14 í dag. Minntust látinna með einnar mínútu þögn. Síðan var spilað lag KK; When I Think of Angels, í flutningi hans og Ellenar Kristjánsdóttur. Þau sömdu lagið til minningar um systur þeirra sem lést í umferðarslysi í Bandaríkjunum árið 1992. Lagið var flutt á sama tíma á öllum útvarpsstöðum sem voru með lifandi, beina útsendingu, á minningardeginum. Á meðfylgjandi mynd eru fulltrúar frá lögreglu, slökkviliði, sjúkraflutningafólk, RKÍ, slysavarnadeildinni Líf og björgunarfélaginu.",
"innerBlocks": []
}