
Vindmylla og Tryggvi Þór innfelldur á hana. Samsett mynd/frg.
Áforma að reisa tvo vindmyllugarða á Vesturlandi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Franska fyrirtækið Qair Iceland ehf. áformar að reisa tvo vindmyllugarða á Vesturlandi en fyrirtækið er dótturfyrirtæki franska fyrirtækisins Qair Group. Qair hét áður Quadran Iceland Development ehf. og var stofnað 2018 samkvæmt upplýsingum frá Ríkisskattstjóra. Fyrirtækið Qair Group er óháður framleiðandi endurnýjanlegrar orku víða um heim. Sá garður sem lengra er kominn er áformaður í landi Sólheima á Laxárdalsheiði í Dalasýslu og hinn sem er styttra kominn verður í Borgarfirði, nefnist Múli og er á hluta jarðarinnar Hvamms í Norðurárdal.\r\n\r\nAlls áformar Qair að setja upp níu vindorkugarða, víðs vegar um landið og er áætlað afl þeirra alls tæplega 800 megavött. Garðurinn í Sólheimum er áætlaður 162,4 megavött og Múli 72,8 megavött. Þegar rýnt er í gögn frá Orkustofnun um stöðu virkjanakosta, sem eru til meðferðar í rammaáætlun, kemur í ljós að alls eru 34 vindorkuver í meðferð og samtals er áætlað afl þessara vera um 3.065 megavött. Til að setja þetta í samhengi þá er Kárahnjúkavirkjun 690 megavött.\r\n\r\nAð sögn Tryggva Þórs Herbertssonar, stjórnarformanns Qair á Íslandi er vindrannsóknum vegna garðsins í Sólheimum lokið og umhverfismat ætti að vera tilbúið í janúar næstkomandi. Skipulag er komið vel á veg en rannsóknir hafa staðið í um þrjú ár. Á Múla eru umhverfisrannsóknir í gangi og vindrannsóknir eru að fara af stað. Staðið hefur til að halda kynningarfund í Borgarfirði vegna vindorkugarðsins í Múla en þurft hefur að fresta þeim fundi vegna faraldursins. Tryggvi segir að fyrirtækið bíði eftir tækifæri til þess að kynna verkefnið fyrir íbúum Borgarfjarðar.\r\n\r\n<strong>Vel tekið í Dalabyggð</strong>\r\n\r\nAð sögn Tryggva hefur fyrirtækinu verið tekið afar vel í Dalabyggð en ekki sé enn farið að reyna á það í Borgarbyggð. „Við sjáum það þegar við hittum Borgfirðinga á fundinum þegar tekst loks að halda hann. Við leggjum mikla áherslu á að vera í góðu sambandi við nágrannana. Við erum búin að búa til góða kynningu sem bíður þess að við getum haldið fundinn.“\r\n\r\nJafnframt áformum um vindmyllugarða áformar Qair Iceland að framleiða vetni á Grundartanga og hefur fyrirtækið sótt um lóð fyrir vetnis- og vetnisafleiðuframleiðslu. Er hugmyndin sú að sögn Tryggva að hefja vetnisframleiðslu á Grundartanga ef leyfi fást og nota til þess rafmagn sem framleitt verður í vindmyllugörðum fyrirtækisins. Vetni sem verður umfram innanlandsnotkun, til dæmis sem rafeldsneyti, verði síðan breytt í ammoníak og flutt þannig út. Stjórn Faxaflóahafna fjallaði nýverið um umsókn Qair um lóð á Grundartanga. Í fundargerð kemur fram að fleiri fyrirtæki hafa sýnt sambærilegan áhuga. Samþykkt var á fundinum að halda viðræðum opnum við alla aðila, bíða úrræða eða viljayfirlýsinga um orkuöflun og fara yfir málið með sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar. Það er því ljóst að áhugavert verður að fylgjast með þróun mála varðandi vetnisframleiðslu hér á landi svo og þróun vindorkuvera á Íslandi.",
"innerBlocks": []
}