Hraðhleðslustöð er nú risin við íþróttamiðstöðina í Stykkishólmi. Ljósm. sá

Fyrsta hraðhleðslustöðin komin í upp í Stykkishólmi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Stykkishólmsbær gerði nýverið samning við Ísorku um að reisa fyrstu hraðhleðslustöðina í bænum og er hún nú komin upp á planinu við íþróttamiðstöðina. Stöðin er 150kw og er þannig gerð að hægt er að leggja beggja vegna við hana og hlaða tvo bíla í einu. Þá hefur verið gert ráð fyrir tveimur stöðvum til viðbótar sem settar verða upp síðar. Er þetta mikill munur fyrir eigendur rafmagnsbíla að geta komist í hraðhleðslustöð þar sem tekur töluvert styttri tíma að hlaða bílinn heldur en á hefðbundnum hleðslustöðvum.",
  "innerBlocks": []
}
Fyrsta hraðhleðslustöðin komin í upp í Stykkishólmi - Skessuhorn