
Stæða með frárennslisrörum í Borgarnesi. Ljósm. úr safni/ mm.
Rörasteypu hætt á næsta ári í Borgarnesi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Steypustöðin í Borgarnesi hefur með bréfi til viðskiptavina sinna tilkynnt að á næsta ári verði hætt framleiðslu og sölu á steinrörum og brunnum hjá fyrirtækinu. Í bréfinu, sem Lárus Elíasson framkvæmdastjóri Steypustöðvarinnar í Borgarnesi ritar, segir að sökum breyttra markaðsaðstæðna hafi fyrirtækið ákveðið að hætta framleiðslu steinröra og brunna á árinu 2022. Markaður fyrir þessa framleiðslu hafi minnkað það mikið að hún sé ekki lengur fýsileg. „Við munum hins vegar þjónusta okkar viðskiptavini, og þau verkefni sem þegar hafa verið samþykkt, í samræmi við eftirfarandi dagsetningar: Hættum að gefa ný tilboð 1. desember 2021, breytingar á fyrirliggjandi verkum og tilboðum möguleg til 1. janúar 2022 og afhending samkvæmt samkomulagi við viðskiptavini, þó ekki síðar en 1. júlí 2022.“\r\n\r\nSegja má að með þessari ákvörðun Steypustöðvarinnar sé að ljúka ríflega sjötíu ára kafla í atvinnusögu Borgarness. Borgarneshreppur hóf að steypa steinrör fyrir 1950 en Loftorka keypti rörasteypuna árið 1969. Hafa rör verið steypt í Borgarnesi allar götur síðan. Nú er hins vegar í ört vaxandi mæli farið að leggja frárennslisrör og brunna úr plasti og því má segja að það sé tæknin sem er að ryðja gömlu steinröraframleiðslunni úr sessi.",
"innerBlocks": []
}