Helgi Jón og Einar Örn náðu báðir góðum árangri.

Góður árangur lyftingafólks frá Kraftlyftingafélagi Akraness

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Bikarmót í klassískum kraftlyftingum fór fram laugardaginn 20. nóvember og átti Kraftlyftingafélag Akraness þar þrjá keppendur. Í kvennaflokki keppti Sylvía Ósk Rodriguez í -84 kg flokki kvenna. Hennar þyngstu lyftur voru 145 kg í hnébeygju, 82,5 kg í bekkpressu, 160 kg í réttstöðulyftu og samanlagður árangur 387,5 kg sem gefa 73,78 stig. Hún náði fram bætingum í öllum greinum og árangurinn tryggði henni 2. sætið í þyngdarflokknum.\r\n\r\nÍ -105 kg flokki karla þreytti Helgi Jón Sigurðsson frumraun sína í keppni í kraftlyftingum. Hann lyfti þyngst 205 kg í hnébeygju, 115 kg í bekkpressu og 240 kg í réttstöðulyftu. Það gaf honum 560 kg í samanlagt, 72,65 stig og 2.sætið í þyngdarflokknum.\r\n\r\nÍ -120 kg flokki karla keppti Einar Örn Guðnason. Hans þyngstu lyftur voru 270 kg í hnébeygju, 185 kg í bekkpressu og 270 kg í réttstöðulyftu. Það gerðu 725 kg í samanlagt og 87,08 stig. Sá árangur tryggði honum 1. sætið í þyngdarflokknum og jafnframt var Einar annar stigahæsti keppandinn í karlaflokki.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_49008\" align=\"alignnone\" width=\"300\"]<img class=\"wp-image-49008 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2021/11/Godur-arangur-lyftingafolks-fra-Kraftlyftingafelagi-Akraness_2-600x369.jpg\" alt=\"\" width=\"300\" height=\"185\" /> Sylvía Ósk Rodriguez með 160 kg á stönginni í réttstöðulyftu.[/caption]",
  "innerBlocks": []
}
Góður árangur lyftingafólks frá Kraftlyftingafélagi Akraness - Skessuhorn